Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.


Image Added

Image Added

Image Added

Það eru þrír innskráningarmöguleikar í boði - kennitala, netfang og rafræn skilríki. Hægt er að hafa alla valmöguleika í boði, einn eða tvo og er stillt hvaða valmöguleiki er ríkjandi ef fleiri en einn er í boði.

Ef umsækjandi hefur ekki áður sótt um starf hjá fyrirtækinu þarf hann að byrja á því að nýskrá sig á vefinn með því að slá inn nafn, kennitölu og netfang og ásamt því að velja sér lykilorð. Athugið að um leið og umsækjandi nýskráir sig verður hann til sem Umsækjandi í kerfinu, jafnvel þótt hann klári ekki að senda inn umsókn um tiltekið starf.

Ef umsækjandi hefur áður nýskráð sig er hann einungis beðinn um að slá inn kennitölu og það lykilorð sem hann valdi sér.

Hafi notandi gleymt lykilorði er smellt á Gleymt lykilorð hnappinn og nýtt lykilorð er sent á netfang umsækjanda. 


Eftir það opnast umsóknarformið með þeim spurningum sem valdar voru inn í stofnspjald auglýsingar

Spurningarnar opnast eins og þær voru stilltar í stofnspjaldi auglýsingar. Ef að spurning var með valmöguleikann að svara oftar en einu sinni, eins og t.d. spurning um menntun þar sem umsækjendur eru beðnir um að setja inn alla þá menntun sem þeir hafa velur umsækjandinn Bæta við fyrir hverja færslu sem hann skráir.

Þegar umsækjandi hefur lokið við að fylla út umsókn er smellt á Senda umsókn neðst í umsóknarforminu.

...