...
Hingað til hefur Starf verið nýtt fyrir starfafjölskyldur en ákveðið var að bæta við alveg nýrri virkni fyrir starfafjölskyldur. Bætt hefur verið við Jafnlaunavottun - Starfafjölskyldur undir Stofnskrár. Er starfafjölskyldan skráð í grunnlaunaspjald starsfmannsins. Eins er hægt að sjá upplýsingar um starfafjölskyldur á grunnlaunaflís í Teymið mitt og koma þessar upplýsingar í samþykktaferli launabreytinga á Kjarna vef. Ef óskað er eftir að nota starfafjölskyldur skal senda beiðni á service@origo.is þar sem setja þarf inn stillingar þessu tengdu.
...
Áminningar - Afmælisdagar
Bætt hefur verið við áminningu fyrir afmælisdaga starfsmanna. Ef óskað er eftir að bæta þessari áminningu við skal senda beiðni á service@origo.is
Áminningar - senda út frá Stofnað þann í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis
Núna er hægt að senda áminningar út frá Stofnað þann í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um þessa áminningu og aðstoð við uppsetningu skal senda beiðni á service@origo.is
Starfsmannalisti á Kjarnavef - Kyni bætt við
...
Bætt var við ástæðu ráðningarmerkingar og tegund ráðningar í starfsmannaveltuskýrsluna. Núna er því hægt að greina starfsmannaveltu niður á ástæðu ráðningarmerkingar og tegund ráðningar.
Teymið mitt á Kjarna vef - starfsmaður með framtíðarfærslu ekki að birtast í teymið mitt
Ef starfsmaður sem er ekki í starfi í dag en á framtíðarfærslu var á stöðu sem enginn annar starfsmaður var á í dag þá var hann ekki að birtast í Teymið mitt. Þetta hefur verið lagað.