Mannauður 23.1.1
Skýrslan Jafnlaunavottun - bæta við menntunarflokki
Svæðunum Menntunarflokkur nr og Menntunarflokkur hefur verið bætt í skýrsluna Jafnlaunavottun. Hægt er að draga þessi svæði inn með því að fara í Velja dálka.
Skýrslan Jafnlaunavottun - bæta við svæðinu Grunnlaunaflokkur
Nú er hægt að draga svæðið Grunnlaunaflokkur inn í skýrsluna Jafnlaunavottun
Jafnlaunavottun - Starfafjölskyldur
Hingað til hefur Starf verið nýtt fyrir starfafjölskyldur en ákveðið var að bæta við alveg nýrri virkni fyrir starfafjölskyldur. Bætt hefur verið við Jafnlaunavottun - Starfafjölskyldur undir Stofnskrár. Er starfafjölskyldan skráð í grunnlaunaspjald starsfmannsins. Eins er hægt að sjá upplýsingar um starfafjölskyldur á grunnlaunaflís í Teymið mitt og koma þessar upplýsingar í samþykktaferli launabreytinga á Kjarna vef. Ef óskað er eftir að nota starfafjölskyldur skal senda beiðni á service@origo.is þar sem setja þarf inn stillingar þessu tengdu.
Áminningar - Afmælisdagar
Bætt hefur verið við áminningu fyrir afmælisdaga starfsmanna. Ef óskað er eftir að bæta þessari áminningu við skal senda beiðni á service@origo.is
Áminningar - senda út frá Stofnað þann í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis
Núna er hægt að senda áminningar út frá Stofnað þann í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um þessa áminningu og aðstoð við uppsetningu skal senda beiðni á service@origo.is
Starfsmannalisti á Kjarnavef - Kyni bætt við
Nú er hægt að velja kyn inn í starfsmannalistann á Kjarnavef.
Starfsmannalisti á Kjarnavef - Töfluhaus festur
Töfluhaus er nú fastur í starfsmannalistanum á Kjarnavef þegar skrollað er niður listann.
Tölfræði á upphafssíðu Kjarnavefs - Breytingar á listum í leitinni
Ef þau fyrirtæki sem á að birta tölfræði fyrir á Kjarnavef eru talin upp í stillingunni Hr.Statistics.Companies þá birtast núna eingöngu þau fyrirtæki í leitarlistanum. Einnig birtast núna eingöngu þær skipulagseiningar í leitinni sem tilheyra þeim fyrirtækjum sem skilgreind eru í stillingunni.
Starfsmannamyndir - Birting á vefum frá viðhengjaspjaldi
Núna er hægt að birta starfsmannamyndir á starfsmannavef og Kjarnavef sem settar eru í viðhengjaspjald starfsmanna (á tegund skjals = Mynd) ef notendur kjósa það í stað þess að vera með starfsmannamyndir á vefslóð í stillingunni Xap.EmployeeMaster.ImagePath. Hægt er að vera með bæði vefslóð í stillingu og mynd vistaða í viðhengjapjald starfsmannsins en birtist þá mynd úr viðhengjaspjaldi ef ekki er til mynd af starfsmanni á vefslóðinni, þ.e. vefslóðin er ríkjandi.
Ath. ef þessi virkni er notuð þá verður að vera lesaðgangur að skjalatýpunni Mynd fyrir alla starfsmenn í starfsmannavefshlutverkinu svo að myndir af starfsmönnum birtist á afmælisflísinni á starfsmannavefnum. Ef óskað er eftir að bæta þeim aðgangi við skal senda beiðni þess efnis á service@origo.is
Yfirmaður sjái samþykkt orlof þegar skráður er tímastjóri á starfsmann
Þegar tímastjóri var skráður á starfsmann þá sá yfirmaður ekki samþykkt orlof starfsmannsins undir Mannauður > Orlof > Samþykkt orlof. Þetta hefur verið lagað.
Starfsmannaferlar á vef - fleiri færslur fyrir lífeyrissjóð, stéttarfélög og skattkort
Núna er hægt að bæta við fleiri færslum fyrir lífeyrissjóð, stéttarfélög og skattkort í starfsmannaferlunum á Kjarna vef. Ef um tilfærslu er að ræða eru allar færslur sóttar sem til eru í þessum spjöldum og ef verið er að bæta við starfi eru allar færslur fyrir skattkort sótt.
Starfsmannaferlar á vef - Launaflokk og þrep breytt í innsláttarsvæði
Breyting var gerð í skrefinu fyrir grunnlaun í starfsmannaferlunum að núna er launaflokkur og þrep innsláttarsvæði en ekki fellival líkt og var áður. Launaupphæð birtist því ekki lengur í þessu skrefi.
Eyða starfi af stöðu
Ekki var hægt að eyða starfi af stöðu. Þetta hefur verið lagað.
Starfslýsing datt út ef staða var afrituð
Ef staða var afrituð sem var með starfslýsingu og starfslýsingunni eytt út af stöðunni sem verið var að afrita þá eyddist starfslýsingin líka út af þeirri stöðu sem var afrituð. Þetta hefur verið lagað.
Starfsmannavelta - bætt við ástæðu ráðningarmerkingar og tegund ráðningar
Bætt var við ástæðu ráðningarmerkingar og tegund ráðningar í starfsmannaveltuskýrsluna. Núna er því hægt að greina starfsmannaveltu niður á ástæðu ráðningarmerkingar og tegund ráðningar.
Teymið mitt á Kjarna vef - starfsmaður með framtíðarfærslu ekki að birtast í teymið mitt
Ef starfsmaður sem er ekki í starfi í dag en á framtíðarfærslu var á stöðu sem enginn annar starfsmaður var á í dag þá var hann ekki að birtast í Teymið mitt. Þetta hefur verið lagað.