Útgáfa 22.5.3

Útgáfudagur 9. mars 2023

Samþykktarferli launabreytinga

APPAIL-9545, APPAIL-9542

Gerðar voru breytingar á því hvernig fjárhæðir voru sóttar ef t.d. starfsmaður er með laun skipt á tvær kostnaðarstöðvar. Einnig voru skipuritsupplýsingar lagaðar.

Teymið mitt - Samningur á grunnlaunaflís

APPAIL-9530

Ef starfsmaður var í þrepi 0 þá birtist samningurinn ekki á grunnlaunaflísinni. Þetta hefur verið lagað.

Listinn Samþykkt orlof birti alla starfsmenn

APPAIL-9547

Listinn Samþykkt orlof var bara að birta þá starfsmenn sem voru með hakað í Kjarni viðvera í vinnutímaspjaldinu. Þetta hefur verið lagað og núna birtast allir starfsmenn í þessum lista.

 

Mötuneyti og verslanir > Kiosk - Texti á upphafsskjá

APPAIL-9533

Núna er hægt að bæta við stillingu ef óskað er eftir að hafa annan texta á upphafsskjá Kiosk í mötuneytinu. Bæði er hægt að hafa annan texta á íslensku og ensku. Ef þessi stilling er ekki inni kemur upp sjálfgefin texti bæði á íslensku og ensku.