Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Hægt er á einfaldan hátt að eyða út starfsmannaupplýsingum og skjölum fyrir starfsmenn sem hætt hafa störfum fyrir X mánuðum síðan undir flipanum Aðgerðir > Eyða starfsmannaupplýsingum.

Image Modified

Undanskilin eru  gögn í spjöldunum Starfsmaður, Launamannanúmer, Starfsaldur og Tenging innan fyrirtækis auk launagagna og launaseðla en Grunnlaunaspjaldi er eytt.

Sjálfgefna gildið í aðgerðinni er 0 mánuðir en til að breyta því er farið í Stillingar > Gildi > EmployeeDeleteDataWithoutPayGDPR.Months og í gildi er settur inn fjöldi mánaða. Hægt er að yfirskrifa mánaðarfjölda þegar aðgerðin er keyrð en en við mælum með því að breyta alltat gildinu úr 0.

Image Modified

Mánaðarfjöldinn segir til um hve langt er frá því að starfsmaðurinn hætti störfum og er miðað við þá dagsetningu sem Hættur færslan í Tenging innan fyrirtækis spjaldinu tekur gildi. Kerfið horfi bara á þær Hættur færslur sem eru með gildir til dagsetningu 31.12.9999.

(info) Athugið að til þess að tryggja að launaseðlum sé ekki eytt af hættu starfsfólki þá þarf að ganga úr skugga um að númer skjalategundarinnar "Launaseðill" sé skilgreint í stillingu "FileRepositoryObjectDocumentType.Payslip" í "Stillingar > Gildi". 

Þetta forrit/virkni gerir ekkert við gögn í ráðningarkerfi þar sem sér aðgerð er þar til þess að eyða gömlum gögnum.



Hvaða gögn eyðast

Hvað eyðist Myndir

Starfsmannaspjald

  • Banki
  • Gjöld 
  • Skattkort
  • Launaseðlar eyðast ekki
  • Starfsferill
  • Starfsaldur eyðist ekki
  • Hlutir í láni
  • Kjör eyðist
  • Viðhengi  (nema launaseðlar)
  • Til minnis 
  • Samgöngustyrkur
  • Samskipti

Image Added

Þekking og fræðsla

  • Menntun
  • Hæfni
  • Réttindi 
  • Námskeið

Image Added

  • Tenging innan fyrirtækis eyðist ekki
  • Grunnlaun
  • Vinnutími
  • Viðverureglur
  • Orlof eyðist
  • Lífeyrissjóðir
  • Stéttarfélög
  • Fasti launaliðir
  • Reikniliðir
  • Reiknihópar
  • Efla
  • Intellecta
  • Persónubundnir þættir

Image Added

Þó að launagögnum sé eytt úr spjöldum starfsmanns er alltaf hægt að nálgast gögnin. Vegna bókhaldslaga verður að geyma bókhaldsgögn í ákveðinn tíma
sem hægt er að nálgast í fyrirtækjalista í client.

Einnig eru skjölum starfsmannsins eytt út skjalaskápnum NEMA launaseðlum.

Forritið finnur svo frammistöðumöt sem eru tengd á starfsmanninn. Það öllum svörum þ.e. svari starfsmannins, svari yfirmannsins, sameiginlegum svörum og svo frammistöðumatsfærlsunni sjálfri. Sama er gert við gátlistana, svörum gátlistans er eytt og svo færslunni sjálfri, og einnig námskeiðsþáttakanda, svörum hans við námskeiðsmati og viðbótarspurningum.