Eftir fyrsta maí ár hvert er orlofsárið gert upp. Áunnið orlof og staða á eldra orlofi er dregið saman í eina tölu og verður að orlofi til úttektar í sumar.
...
- Stofna orlofsútborgun – útborgun stofnast með dagsetningunni 1.maí til 31.maí, útborgun fær númerið 05-Orl og merkinguna Orlofsáramót.
Athugið að Orlofsár er nýliðið orlofsár, dæmi í maí 2022 er Orlofsár 2021. - Sækja ávinnslu – Ávinnslur launamanna eru sóttar í lokaðar útborganir fyrir síðastliðið orlofsár frá 1.maí til 30.apríl.
- Eldra orlof yfir 1.maí – 9270 Eldra orlof – myndast úr launalið 9289 mínus 9299. Launaliður 9270 er notaður til að reikna út orlofsskuldbindingu í ávinnslum og í uppgjöri við starfslok. Þessir tímar eru settir á launalið 9287 Orlofsstaða 1.maí - Eldra orlof þegar orlof er núllstillt á orlofsáramótum. Þessi færsla kemur eingöngu fram í listanum Orlofsyfirlit í hliðarvali Kjarna, laun, þar sem orlofsstaðan 1.maí er sundurliðuð í ávinnslu og eldra orlof.
- Áunnið orlof yfir 1.maí – 9275 Áunnið orlof – myndast úr launalið 9280. Launaliður er notaður til að reikna út orlofsskuldbindingu í ávinnslum og í uppgjöri við starfslok. Þessir tímar eru settir á launalið 9288 Orlofsstaða - Áunnið síðasta orlofsár þegar orlof er núllstillt á orlofsáramótum. Þessi færsla kemur eingöngu fram í listanum Orlofsyfirlit í hliðarvali Kjarna, laun, þar sem orlofsstaðan 1.maí er sundurliðuð í ávinnslu og eldra orlof.
- Orlofstíma yfir 1.maí – Samanlögð staða á ( 9270 + 9275 ). Launaliður kemur fram í áramótastöðu. Þessi samtala er sett á 9289 Orlof yfir 1.maí – þegar orlof er núllstillt á orlofsáramótum.
...
Ekki er leyfilegt að flytja með sér eldra orlof á 9270 Eldra orlof eða leyft að flytja takmarkaðan tímafjölda
Skv. orlofslögum þá er ekki leyfilegt að flytja með sér orlof á milli ára, okkur ber að taka það út á réttum tíma.
...
Ekki rétt staða í Kjarna á 9270 Eldra orlof
Fyrir kemur að orlofsúttektir skila sér ekki til launafulltrúa og þá verður staðan á eldra orlofi röng í Kjarna. Í þeim tilvikum vilja notendur oft frekar lesa þá orlofsstöðu úr tímaskráningarkerfi inn í Kjarna.
...
ATH! Næsta aðgerðarskref Orlofstíma yfir 1.maí þarf að framkvæma með smá breytingu. Þegar valskjárinn opnast, þá þarf að fjarlægja launalið 9270 úr honum - við viljum alls ekki fá 9270 úr Kjarna inn í orlofsúborgunina.
Nú þarf að fara í helluvalmynd launa og tryggja að orlofsútborgun sé valin og lesa stöðuna á eldra orlofi inn í þá útborgun í Kjarna.
ATH! Muna að excel skjal þarf að vera með rétt tækniheiti í fyrstu röð og vistað sem .csv skjal. Reitirnir eru kennitala (eða launamannanúmer), Launaliður og Gr.eining
Tækniheitin eru þessi: kennitala er EmployeeSSN Starfsmannanúmer er EmployeeMasterID og Launamannanúmer er EmployeeDetailID).
Tækniheitið fyrir launalið er PayWageID og fyrir grunneiningu er PayRecordBaseUnit.
ATH! Þetta excel skjal þarf að lesa inn tvisvar - fyrst með launalið 9287 Orlofsstaða 1.maí - Eldra orlof og síðan með launalið 9289 Orlof yfir 1.maí
9287 Er Orlofsstaða 1.maí - Eldra orlof og er notað í skýrslunni Orlofsyfirlit til sundurliðunar á stöðunni 1.maí, hvernig hún skiptist í áunnið og ótekið eldra.
9289 Er endanlega Orlofsstaða 1.maí og kemur til viðbótar við það sem þú lætur Kjarna gera með áunnið orlof. Áunnið orlof í Kjarna kemur líka á tvo launaliði 9288 Orlofsstaða - Áunnið síðasta orlofsár og 9289 Orlof yfir 1.maí.
Í eftirfarandi töflu eru tækniheiti fyrir öll þrjú einkenni starfsmanns, notandinn velur það sem við á og hendir restinni út
Fyrra skjalið:
EmployeeSSN;EmployeeMasterID;EmployeeDetailID;PayWageID;PayRecordBaseUnit
0612615329;2222;22221;9287;192
Seinna skjalið:
EmployeeSSN;EmployeeMasterID;EmployeeDetailID;PayWageID;PayRecordBaseUnit
0612615329;2222;22221;9289;192
Einstaka starfsmenn leiðréttir
Ef megnið er rétt í Kjarna en leiðrétta þarf nokkra starfsmenn, þá er það gert í Skoða/Breyta í Orlofsferli, eða beint í Skrá laun í launahring.
...