...
Ef engin stilling er inni fyrir launatímabil þá vistast færslan í föstum liðum með gildisdagsetningunni 1. dag næsta mánaðar þegar sótt er um.
Ef nota á Tegund styrks = Líkamsræktarstyrkur þar sem upphæðarsvæðið er virkt og færslan vistast niður í spjaldið Fastir launaliðir þá þarf að passa að launaliðurinn fyrir styrkinn sé skilgreindur sem eftirá. (Undir flipanum Reikniform > Tímabil og Greiðsluform þarf að stilla á Eftirá). Ástæðan fyrir þessu er svo að upphafsdagur sé mánuðurinn á eftir til þess að enginn falli á milli, þ.e. ef búið er að sækja fasta liði og einhver sækir um styrk eftir það. Dæmi: Fastir liðir sóttir 20. mánaðar og svo sækir einhver um líkamsræktarstyrk 21.-30. mánaðar og þá falla þeir á milli og koma ekki með í útborgun. Annað dæmi: Tveir starfsmenn sækja um 20. febrúar. Annar er fyrirframgreiddur og hinn eftirá. Búið er að sækja fasta launaliði svo til þess að báðir starfsmenn fái þetta örugglega inn hjá sér þá þarf launaliðurinn að vera stilltur eftirá. Þessir tveir fá þá líkamsræktarstyrkinn greiddan á sama tíma, þ.e. eftirágreiddi starfsmaðurinn fengi styrkinn greiddan með marslaunum (í lok mars) en fyrirframgreiddi starfsmaðurinn fengi hann greiddan með apríllaunum (líka í lok mars).
Virknin er því þannig að þegar starfsmaður sækir um styrk þá fær færslan (í spjaldinu Fastir launaliðir) upphafs- og endadag fyrsta dags mánaðarins á eftir. Dæmi: Ef starfsmaður sækir um styrkinn í febrúar þá fær færslan upphafs- og endadag 1.mars og fær hann þá styrkinn greiddan með marslaunum (ef eftirá greiddur).
Greiðsla líkamsræktarstyrkja í lok árs
...