...
Ef hlutfall og Fastar er skráð á samning núll sem erfist þá niður á aðra samninga. Skrá þarf Hlutföll og Fastar á ákveðin samning ef ekki á að nota sama gildi og er á samningi núll.
Hægt er að handslá inn upplýsingar um launatöflur en einnig er hægt að lesa töflur inn úr skrá. Í þessum lista er launatöflum einnig viðhaldið og framkvæmdar hækkanir þegar við á. Upplýsingar sem skráðar eru í launatöflu er hægt að taka út í excel, word, pdf, image, csv, html, mht, text og Mail Merge. | |
---|---|
Stofna Launatöflu Launatöflur eru stofnaðar með því að smella á grænan plús í listanum launatöflur Samningur stofnaður með því að smella á framkvæma | |
Fjöldi aukastafa í launatöflu Hægt er að stilla hversu margir aukastafir eru sýnilegir í launatöflu. Farið er í Stillingar-Gildi og skipunin PayStep.DisplayFormat er stillt á N0,N1,N2,N3 eða N4 allt eftir því hvað á að sýna marga aukastafi. Þegar taflan er flutt úr excel þá koma jafn margir aukastafir og eru skilgreindir í stillingu. |
...
Töfluupphæðir | |
---|---|
Einnig er hægt að hægri smella á gildistíma samnings og komast í Töfluupphæðir saman. | Töfluupphæðir Undir töfluupphæðir er hægt að skoða fjárhæðir valinna launaliða. Hægt er að skrá þá launaliði sem óskað er að birtist með því að setja inn undir Stillingar - Gildi með skipuninni „PayTable.Amount.Wages“ og númer launaliða skráð í gildi. Ef ekkert er skráð er hægt að slá inn þá launaliði sem óskað er eftir að sjá upphæðir fyrir Þegar smellt er á hnappinn „Töfluupphæðir“ birtist valmynd þar sem hægt er að skrá inn valmöguleika fyrir listann. Smellt er á framkvæma til að kalla fram listann sem birtir fjárhæðir valinna launaliða niður á launaflokka og þrep. |
Hlutföll | |
---|---|
Hlutföll Í þennan flipa eru skráð inn hlutföll launaliðar, þ.e.a.s. hlutfall af launaupphæð í launatöflu. Ef aðeins er sett hlutfall í launatöflu nr. 0 en ekkert skráð í aðrar launatöflu, sækir Kjarni hlutfallið í launatöflu nr. 0 Dæmi um svona launalið gæti verið yfirvinna ef hún reiknast alltaf 0,1385% af launum starsmanns þarf einingis að setja þann launalið í töfllu nr. 0 Ef hlutfall dagvinnu er miðsjafnt eftir vinnuskyldu starfsmanna þarf að setja rétt hlutfall í hverja launatöflu fyrir sig Dæmi: Vinnuskylda starfsmanns er 0,615 af launum (launaliður 130) reiknast sem 0,615% af launum í launatöflu. Ef álag reiknast sem hlutfall af dagvinnu þarf að setja rétt hlutfall á hvern launalið fyrir sig: Hér fyrir neðan má sjá hvernig hlutfallið er reiknað: Hafa þarf þetta í huga ef hlutfall dagvinnutíma er að breytast t.d. vegna styttingar á vinnuskyldu |
Fastar | |
---|---|
Fastar Í fasta eru skráðir inn launaliðir þar sem hver eining hefur fasta krónutölu.
Fasti er skráð á samning núll en einnig er hægt að skrá á samning ef ekki á að nota sömu krónutölu í öllum samningum fyrir ákveðin launalið |
Aldurshækkanir | |
---|---|
Aldurshækkanir Í flipanum aldurshækkanir eru settar inn þær reglur sem gilda um hækkanir á launum samkvæmt líf- eða starfsaldri. Þar undir eru settar inn reglur sem varða orlofshækkanir, launaflokka – og þrepahækkanir, álagshækkanir og aukaflokks hækkanir. |
Reikniliðir / Hópar | |
---|---|
Reikniliðir/Hópar Hægt er að skrá reikniliði/hópa beint inn á kjarasamninga. Á myndinni sést að ef starfsmaður sem fær greidd laun skv. þessum kjarasamningi, fær greiddan launalið 1000 Mánaðarlaun þá á hann að fá launaliðinn 1100 Bónus í sama hlutfalli. Reikniliðinn sjálfann þarf að stofna sérstaklega og er hann sóttur í fellival í gegnum táknið þrír punktar. Bónus prósentan kemur úr reikniliðnum en einnig er hægt að yfirskrifa hana hér í reitnum Gildi.
Einnig er hægt að setja marga reikniliði í sama reiknihóp |
Réttindi | |
---|---|
Réttindi Hægt er að skilgreina veikindarétt starfsmanna beint inn á kjarasamning eftir því sem við á. Stillingarnar eru settar inn miðað við þann starfsaldur sem skilgreindur er í viðkomandi samningi. Fyrir veikindarétt vegna barna þarf að setja hak í svæðið "Réttindi barna" |
...
Eyða launatöflu - eyða fyrst upplýsingum úr flipum | |
---|---|
Eyða launatöflu Ef eyða þarf launatöflu þarf að byrja á því að eyða upplýsingum úr flipanum flipunum Þrep, Hlutföll, Fastar, Aldurshækkanir og , Reikniliðir/Hópar og Réttindi og smella á vista. Að því loknu er skrifuð eftirfarandi skipun inn í skipanagluggan í neðra vinstra horni: PayTablePeriod.List |
Eyða launatöflu |
---|
PayTablePeriod.List skilar lista yfir allar launatöflur í Kjarna. Til að vera öruggur um að eyða réttri launatöflu er Vísir dreginn inn í listann. Rétt lína valin og henni eytt með rauðum mínus í tækjaslá. |
Lesa inn nýjar launatöflur
...