Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.
Comment: Version published after converting to the new editor

Í Kjarna er hægt að skila kjarakönnun Intellecta með einföldum máta. Áður en könnuninni er skilað þurfa viðskiptavinir að setja inn viðeigandi forsendur í kerfið. Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um hvaða upplýsingar þarf að setja inn svo hægt sé að skila kjarakönnun beint úr kerfinu. Eftirfarandi spjöld eru  notuð:

  • Stofnskrár → Menntun - Gráður : Menntunarstig
  • Stofnskrár → Menntun : Menntunarsvið Háskólamenntaðra er skráð í Námsleið 
  • Stofnskrár → Stöður : Eðli starfs, starfssvið, ábyrgðarstig, mannaforráð, földi undirmanna, vaktavinna, starfslýsing
  • Mannauður → Intellecta - spjald : Menntunarsvið fyrir verk- og tæknifræðinga, tryggingar, frístundastyrkur, grænn ferða- eða samgöngustyrkur.
  • Mannauður → Tengingar innan fyrirtækis : Staða
  • Mannauður → Starfsmaður : Fæðingarár, kyn, fyrsti ráðningardagur
  • Mannauður → Grunnlaun : Launaþróun
  • Mannauður → Orlof : Orlofsdagar á ári
  • Mannauður → Fastir liðir : Bifreiðahlunnindi, bílastyrkur. ATH! launaliðir skráðir í dálkalista.
  • Mannauður → Lífeyrissjóður : Mótframlag í séreign
  • Mannauður → Vinnutími : Starfshlutfall

...

Stöður

Fara þarf inn í hverja stöðu fyrir sig og setja inn réttar skilgreiningar á allar stöður sem skráðar eru í kerfið.

Listinn er aðgengilegur í gegnum hliðarvalmynd;

Kjarni → Stofnskrár → Stöður

Fljótlegasta leiðin til að vinna með listann er að breyta honum í Select lista með því að smella á í tækjastikunni.

Intellecta ábyrgðarstig:

Velja þarf ábyrgðarstig viðkomandi stöðu.

  • Stjórnandi þrep 1-3
  • Sérfræðingur þrep 1-4
  • Fagfólk, þrep 1-3
  • Annað: Hér þarf að setja inn lýsingu í dálkinn þar fyrir aftan.

Intellecta - Vaktavinna

Hér þarf að merkja inn hvort að starfsmenn sem gegna viðkomandi stöðu vinni vaktavinnu eða ekki.

Intellecta - Starfssvið

Ráðgjafar Origo lesa inn lista yfir starfssvið.  Velja skal starfssvið úr lista á hverja stöðu.




 

MUNA AÐ VISTA ÁÐUR EN LISTANUM ER LOKAÐ

 Intellecta - Spjald

Þetta spjald er aðeins aðgengilegt pr starfsmann,
annars vegar úr Kjarni > Mannauður > Intellecta - spjald (listi) og hins vegar úr Starfsmenn > Launamaður > Intellecta

Fljótlegasta leiðin til að vinna með listann er að breyta honum í Select lista með því að smella á í tækjastikunni.

Tryggingar á ári og Menntunarsvið (Verk- og tæknifræðíngar) bjóða upp á fellival. Önnur svæði þarf að handslá inn í.


MUNA AÐ VISTA ÁÐUR EN LISTANUM ER LOKAÐ

...