Intellecta

Intellecta

Intellecta skýrslan er aðgengileg í hliðarvalmynd Kjarna undir Kjarni > Skýrslur

Áður en skýrslan er tekin í notkun þarf að setja inn ákveðnar grunnstillingar ásamt því að setja upp dálkalista sem skýrslan byggir á. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað eftir þörfum. 

 

Skýrsluna þarf að opna miðað við 12 mánaða tímabil til að ná inn þeim meðaltölum sem óskað er eftir í einstaka dálka.

Þar sem skilin eiga að miða við viðmiðunarmánuðinn september þarf því valið tímabil í valskjá að vera frá október - september, 

image-20250521-102339.png

Ef skýrslan er alltaf tekin út fyrir ákveðna ráðningarmerkingu og tegund ráðningar þá er hægt að setja inn stillingar undir gildi og telja upp þær tegundir sem birta á í valskjá.

  • Intellecta.EmployeeStatus - upptalning á ráðningarmerkinum í valskjá, dæmi "2,4,6"

  • Intellecta.EmployeeGroup - upptalning á tegundum ráðninga í valskjá, dæmi "1,2,3,4,5,6,7,8,10,11"

 

Vefskil

Intellecta bíður uppá að skýrslan sé villuprófuð og send til þeirra með vefskilum.

Ráðgjafar Origo aðstoða við að koma þeim stillingum sem þarf fyrir vefskilin inn í Kjarna. Viðskiptavinur þarf að vera búin að fá notendanafn og lykilorð til að hægt sé að virkja skilin.

Hægt er að senda beiðni á service@origo.is til þess að fá aðstoð við þessar stillingar.

 

Þegar búið er að setja inn stillingar vegna vefskila þá koma tveir nýir hnappar fram í tækjaslá þegar skýrslan er opnuð:

 

image-20241029-154740.png

Sá sem er eins og blár skjár er til þess að villuprófa skýrsluna.

Þegar skýrslan er villulaus þá virkjast hnappurinn við hliðina sem er kassi með ör upp og með smelli á hann er skýrslan send.

 

 

Frekari upplýsingar:

 

Nr í excel 2025

Texti

Skýring

Dálkalisti nr. dálks

B

Kyn

Sótt úr grunnupplýsingum starfsmanns

 

C

Aldur í mánuðum

Sótt úr grunnupplýsingum starfsmanns

 

D

Starfsaldur

Sótt úr grunnupplýsingum starfsmanns - skilað heildar starfsaldri viðkomandi hjá fyrirtæki í mánuðum, ekki ártali.

 

E

Starfstitill

Sótt úr tenging innan fyrirtækis (Staða starfsmanns)

 

F

Starfssvið

Sótt úr skráningu á stöðu

 

G

Ábyrgðarstig

Sótt úr skráningu á stöðu

 

H

Mannaforráð (True/False)

Sótt úr tenging innan fyrirtækis (Staða starfsmanns)

 

I

Vaktavinna (True/False)

Sótt úr skráningu á stöðu

 

J

Starfshlutfall

Sótt í vinnutímaspjald - kemur sem 0,xx og má ekki vera meira en 1

 

K

Menntunarstig

Sótt úr skráningu á menntun

 

L

Menntunarsvið

Sótt úr menntunarspjaldi starfsmanns. Hér skilar kerfið þeirri færslu sem merkt er "hæsta menntunarstig". Það verður að vera skráð dagsetning í svæðið Lauk námi í menntunarspjaldi svo gögn skili sér í Intellecta skýrsluna.

 

M

Föst mánaðarlaun

Sótt úr launatöflu út frá grunnlaunaspjaldi

1

N

Föst mánaðarleg yfirvinna

Sótt úr föstum launaliðum, eining sinnum upphæð.

2

O

Auka yfirvinna

Sótt úr september útborgun

3

P

Vaktaálag

Ef =vaktavinna í dálki I þá sótt úr launum. Meðaltal vakaálags miðað við unna mánuði. Ef ekkert álag í september þá kemur dálkur tómur

4

Q

Bakvaktarálag

Ef engin bakvakt í september þá kemur dálkur tómur 

5

R

Desemeruppbót (á ári)

Sótt úr launatöflu

6

S

Orlofsuppbót (á ári)

Sótt úr launatöflu

7

T

Bifreiðastyrkur á mánaðargrundvelli

Sótt úr september útborgun

8

U

Ferðastyrkur

Sótt úr september útborgun

9

V

Frístundastyrkir á ári

Sótt úr spjaldinu Intellecta. Ef skráð er upphæð á netttengingu í spjaldið Kjör kemur sú upphæð sjálfkrafa í spjaldið Intellecta

 

W

Aðrar greiðslur á mánaðargrundvelli

Sótt úr september útborgun

10

X

Hefur afnot af bifreið á vegum fyrirtækis (True/False)

Sótt úr föstum launaliðum

11

Y

Kostnaður Kostnaður vegna bifreiðar á vegum fyrirtækis

Sótt úr föstum launaliðum

12

Z

Tryggingar á ári (utan skyldutrygginga)

Sótt úr spjaldinu Intellecta

 

AA

Mótframlag fyrirtækis í séreignarsjóð

Sótt úr launum

 

AB

Orlofsprósenta

Sótt úr orlofsspjaldi

 

AC

Breyting á föstum mánaðarlaunum

Sótt úr launatöflu út frá grunnlaunaspjaldi
Upphæð í lok tímabils deilt með upphæð í upphafi tímabils.  Ástæða breytinga er skoðuð fyrir nýjustu breytinguna.  Ef strefsmaður hefur ekki unnið nógu lengi til að hægt sé að reikna út 12 mánaða launahækkun þá á að skila eyðu í dálkinn en ekki 0.

 

13

AD

Tekur þátt í skipulögðu breytilegu launakerfi miðað við skammtímaárnagur

Skilar True/False eftir því hvort það komi fjárhæð í síðari dálkinn.

 

AE

Útgreidd upphæð breytilegs álags á ársgrundvelli í skipulögðu breytilegu launakerfi miðað við skammtímaárangur

Heildarfjárhæð launaliða fyrir síðustu 12 mánuði.