Intellecta spjald

Í Intellecta spjaldinu eru skráðar inn vissar upplýsingar um starfsfólk sem ekki eru sóttar úr öðrum spjöldum í kerfinu. Intellecta spjaldið þarf að birta sérstaklega í starfsmannatrénu og er það gert samhliða öðrum stillingum sem þarf að setja inn hjá viðskiptavinum sem eru aðilar að kjarakönnun Intellecta.  Senda þarf póst á service@origo.is þess efnis.



Fylla þarf út í viðeigandi reiti samkvæmt skilgreiningu Intellecta.

ATH. passa þarf að dagsetningin í Gildir frá sé innan úttektartímabils skýrslu.

Hægt er að taka út lista yfir Intellecta spjöldin með því að fara í Mannauður > Intellecta - spjald. Hægt er að breyta/viðhalda upplýsingum í spjöldunum frá þessu sjónarhorni með því að smella á Select lista.