Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Stöður

Fara þarf inn í hverja stöðu fyrir sig og setja inn réttar skilgreiningar á allar stöður sem skráðar eru í kerfið. Ef að fleiri en einn starfsmaður gengir viðkomandi stöðu, og þeir eru ekki eins skilgreindir er hægt að yfirskrifa skráninguna á hverjum og einum starfsmanni í Intellecta spjaldinu.


Listinn er aðgengilegur í gegnum hliðarvalmynd;

Kjarni → Stofnskrár → Stöður

Fljótlegasta leiðin til að vinna með listann er að breyta honum í Select lista með því að smella á í tækjastikunni.

Intellecta ábyrgðarstig:

Velja þarf ábyrgðarstig viðkomandi stöðu.

  • Stjórnandi þrep 1: Það þrep sem er næst undir forstjóra, yfirleitt framkvæmdastjóri eða forstöðumaður.
  • Stjórnandi þrep 2: Það þrep sem er næst undir þrepi 1, yfirleitt forstöðumaður eða deildarstjóri
  • Stjórnandi þrep 3: Það þrep sem er næst undir þrepi 2, yfirleitt deildarstjóri eða hópstjóri.
  • Sérfræðingur þrep 1: Sérfræðingar með mannaforráð og/eða verkefnastjórar.
  • Sérfræðingur þrep 2: Þeir sérfræðingar sem hvorki hafa mannaforráð né verkefnastjórn.
  • Annað: Hér þarf að setja inn lýsingu í dálkinn þar fyrir aftan.

Intellecta - Vaktavinna

Hér þarf að merkja inn hvort að starfsmenn sem gegna viðkomandi stöðu vinni vaktavinnu eða ekki.

Intellecta - Grunnstarfssvið (Hugbúnaðarfólk)

Þessi dálkur á aðeins við um hugbúnaðarfólk. Hér þarf að velja inn grunnstarfssvið þeirra sem eru í slíkum störfum. Í öðrum tilvikum er þessi dálkur hafður auður.

Ef valið er annað úr listanum þarf að setja inn lýsingu í dálkinn þar fyrir aftan.

Intellecta - Menntunarsvið (Verk- og tæknifræðingar)

Þessi dálkur á aðeins við um verk- og tæknifræðinga. Hér þarf að velja inn hvaða menntun þeir starfsmenn sem gegna viðkomandi stöðu hafa. Ef valið er annað þarf að setja inn lýsingu í dálkinn þar fyrir aftan.


MUNA AÐ VISTA ÁÐUR EN LISTANUM ER LOKAÐ

...