...
Breyting var gerð að núna er ekki hægt að skrá sama notendanafn á fleiri en einn starfsmann í starfsmannaspjaldinu.
Stofna stöðu beint úr spjaldinu Tenging innan fyrirtækis og almennt í leitarlistum
Nú hefur verið bætt við þeirri virkni að hægt er að stofna stöðu beint úr spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Þegar smellt er á velja stöðu í spjaldinu birtist listi yfir allar stöður í fyrirtækinu. Úr þeim lista er nú hægt að stofna beint nýja stöðu í stað þess að þurfa að fara úr listanum, loka spjaldinu og inn listann aftur í gegnum Kjarni → Stofnskrár → Stöður. Sömu virkni hefur verið bætt við í öllum sambærilegum aðgerðum þar sem leitarskipanir eru keyrðar ofan á lista.