Þegar listar með raungögnum eru opnaðir kemur fyrst upp Valskjár þar sem hægt er að velja inn forsendur í listann. Ef ekkert er valið þar inn opnaði keyrist listinn upp með öllum starfsmönnum sem eru í starfi, í veikindarleyfi eða í fæðingar-/feðraorlofi. Ef smellt er á fríska hnappinn í valstikunni kemur upp valskjár þar sem hægt er að velja inn nýjar forsendur inn í listann

Hægt er að stilla kerfið þannig að þegar þeir listar sem eru undir Kjarni → Mannauður eru opnaðir kemur kerfið fyrst upp með valskjá svo hægt sé að velja inn skilyrði áður en listinn er keyrður upp. Þetta getur verið gagnlegt þegar verið er að vinna með stóra lista í kerfinu. 

Stillingin er sett í XAP → Gildi:  HrList.SelectionScreen

Í gildi er sett:

True: Ef að valskjár á að birtast um leið og smellt er á listann. Hægt er að komast framhjá valskjánum með því að halda inni Shift takkanum um leið og smellt er á listann

False / eða engin færsla: Ef að valskjár á ekki að birtast um leið og smellt er á listann. Þá keyrist listinn upp með öllum starfsmönnum sem eru í starfi, í veikindarleyfi eða í fæðingar-/feðraorlofi




Tímabil

Undir tímabil er hægt að velja mismunandi tímabil sem stjórnast af dagsetningum í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis.

Ef settar eru dagstningar í reitina Gildir frá og Gildir til koma upp færslur á þeim starfsmönnum sem voru í starfi á því tímabili sem valið var. Ef starfsmaður fór í nýja stöðu á tímabilinu og er þ.a.l. með tvær færslur í spjaldinu tenging innan fyrirtækis á völdu tímabili kemur hann tvisvar í listann. 

Í flestum tilvikum er best að keyra listann með hak í „Í dag" en þá opnast listinn aðeins með þeim starfsmönnum sem eru í starfi hjá fyrirtækinu í dag.

...