Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 4 Next »

Þegar listar með raungögnum eru opnaðir kemur fyrst upp Valskjár þar sem hægt er að velja inn forsendur í listann. Ef ekkert er valið þar inn keyrist listinn upp með öllum starfsmönnum sem eru í starfi, í veikindarleyfi eða í fæðingar-/feðraorlofi. Ef smellt er á fríska hnappinn í valstikunni kemur upp valskjár þar sem hægt er að velja inn nýjar forsendur inn í listann. 


Tímabil

Undir tímabil er hægt að velja mismunandi tímabil sem stjórnast af dagsetningum í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis.

Ef settar eru dagstningar í reitina Gildir frá og Gildir til koma upp færslur á þeim starfsmönnum sem voru í starfi á því tímabili sem valið var. Ef starfsmaður fór í nýja stöðu á tímabilinu og er þ.a.l. með tvær færslur í spjaldinu tenging innan fyrirtækis á völdu tímabili kemur hann tvisvar í listann. 

Í flestum tilvikum er best að keyra listann með hak í „Í dag" en þá opnast listinn aðeins með þeim starfsmönnum sem eru í starfi hjá fyrirtækinu í dag.

Skipurit

Undir skipurit er hægt að velja inn gildi sem tengjast skipuriti fyrirtækis. Þannig er hægt að keyra listann upp aðeins fyrir ákveðið fyrirtæki (ef um samstæðu er að ræða), ákveðna skipulagseiningu o.s.frv. Ef ekkert er valið keyrir listinn á öllum starfsmönnum samstæðunnar eða fyrirtækisins. 

Ráðning

Undir ráðning er hægt að velja inn ákveðið ráðningarmerki eins og „Í starfi, í leyfi," o.s.frv. Í tegund ráðningar er hægt að velja um að listinn sæki aðeins færslur á starfsmönnum sem hafa verið fastráðnir, tímabundið ráðnir o.sfrv. 

Fulltrúar

Undir fulltrúar er hægt að velja inn starfsmenn sem tilheyra ákveðnum starfsmannafulltrúa, launafulltrúa eða tímastjóra hafi þeir verið skráðir á starfsmann í spjaldið tenging innan fyrirtækis. 

  • No labels