...
Nú er hægt að láta starfsmann sendast yfir í tímaskráningakerfi beint úr ferlinu Stofna starfsmann og Flytja umsækjanda. Til þess að virkja það þarf að setja ákveðnar skipanir inn í ferlið fyrir Stofnun starfsmanns og Flytja umsækjanda. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þetta og skal senda póst á service@origo.is ef óskað er eftir því að virkja þennan möguleika.
Tenging við Eloomi
Útfærð hefur verið tenging við fræðslukerfið í Eloomi. Í fyrstu útgáfu af tengingunni er aðgerð sem stofnar skipuritið úr Kjarna í Eloomi og önnur aðgerð sem stofnar starfsmenn úr Kjarna í Eloomi. Í framtíðarútgáfu verður svo hægt að flytja námskeið tilbaka frá Eloomi yfir í Kjarna. Sjá nánar hér.