Almennt 18.11.1
Notandanafn skráð í starfsmannaspjald myndar tengingu við notanda
Í útgáfu 18.9.1 var bætt við að ef notandanafn var skráð í starfsmannaspjald eftir að notandi hafði verið stofnaður myndaðist tenging á milli starfsmanns og notanda (EmployeeXapUser) líkt og gerðist þegar notandanafn var fyrst skráð í starfsmannaspjaldið og svo stofnaður notandi. Aftur á móti var þetta bara að virka ef kveikt var á sjálfvirkri stofnun notanda (User.AutomaticCreate) í Xap > Gildi. Þetta hefur verið lagað og virkar þetta núna hvort sem kveikt er á sjálfvirkri stofnun notanda eða ekki.
Kallað í tengingu við tímaskráningakerfi úr ferlinu Stofna starfsmann og Flytja umsækjanda
Nú er hægt að láta starfsmann sendast yfir í tímaskráningakerfi beint úr ferlinu Stofna starfsmann og Flytja umsækjanda. Til þess að virkja það þarf að setja ákveðnar skipanir inn í ferlið fyrir Stofnun starfsmanns og Flytja umsækjanda. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þetta og skal senda póst á service@origo.is ef óskað er eftir því að virkja þennan möguleika.
Tenging við Eloomi
Útfærð hefur verið tenging við fræðslukerfið í Eloomi. Í fyrstu útgáfu af tengingunni er hægt að stofna skipuritið og starfsmenn úr Kjarna í Eloomi. Í framtíðarútgáfu verður svo hægt að flytja námskeið tilbaka frá Eloomi yfir í Kjarna. Sjá nánar hér.
GDPR - Eyðingarforrit fyrir allar starfsmannaupplýsingar
Bætt hefur verið við nýrri aðgerð undir flipanum Aðgerðir > Eyða starfsmannaupplýsingum. Með þessari aðgerð er hægt á einfaldan hátt að eyða út starfsmannaupplýsingum og skjölum fyrir starfsmenn sem hættu fyrir X mánuðum síðan að undanskildum gögnum í starfsmannaspjaldi, launamannanúmeri, starfsaldri og tenging innan fyrirtækis auk launagagna og launaseðla en grunnlaunaspjaldi er eytt. Ef nota á þessa aðgerð þarf að bæta við stillingu í Stillingar > Gildi > EmployeeDeleteDataWithoutPayGDPR.Months og í gildi er sett inn fjölda mánaða. Mánaðarfjöldinn segir til um hve langt er frá því að starfsmaðurinn hætti störfum og er miðað við frá þeirri dagsetningu sem hættur færslan í tenging innan fyrirtækis spjaldinu tekur gildi. Kerfið horfir bara á þær færslur sem eru með gildir til dagsetningu 31.12.9999.
Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við stillingar og gefið nánari upplýsingar um þessa virkni. Senda skal póst á service@origo.is ef óskað er eftir frekari upplýsingum og aðstoð.
Aðgangur að starfsmannatré í hliðarvalmynd
Gerðar voru breytingar á starfsmannatré m.t.t. aðgangsstýringa. Ef upp kemur að notendur með takmarkaðan aðgang fá ekki upp starfsmannatréð í hliðarvalmynd Kjarna skal senda póst á service@origo.is með upplýsingum um hvaða hlutverk viðkomandi notandi er með og við setjum inn viðeigandi stillingar. Sú vinna er þá hluti af útgáfunni og ekki verður sérstaklega útskuldað vegna þess.