Mannauður 18.11.1
"Finna" í starfsmannaspjöldum
Eftir útgáfu 18.10.1 var svæðið "Finna" í starfsmannaspjöldum ekki að skila neinni niðurstöðu þegar leitað var eftir starfsmanni. Þetta hefur nú verið lagað.
Hægt er að leita eftir kennitölu, starfsmannanúmeri eða nafni.
Flýtiráðning - dagsetningar í stéttarfélagi
Þegar starfsmaður var stofnaður með flýtiráðningu og var skráður bæði í stéttarfélag og starfsmannafélag kom ekki rétt endadagsetning í spjaldið fyrir stéttarfélag, dagsetning gildir til var daginn áður en gildir frá. Þetta hefur nú verið lagað.
Starf birt í lista yfir stöður
Starfi hefur verið verið bætt inn í listann fyrir stöður. Í tengslum við jafnlaunavottun hefur aukist að viðskiptavinir noti starf í Kjarna og því gott að sjá listann yfir stöður með starfinu þar sem tvær stöður geta verið með sama nafni en sitthvort starfið tengt á hvora stöðu.
Starfsmenn birtast í starfsmannatrénu þrátt fyrir að vera með enga færslu í Tenging innan fyrirtækis
Núna birtast starfsmenn í starfsmannatrénu þótt ekki sé búið að stofna færslu í Tenging innan fyrirtækis. Áður þurfti að velja "Birta hætta starfsmenn" til að fá starfsmanninn upp ef ekki var búið að stofna færslu í Tenging innan fyrirtækis.
Starfsmaður í tímaskráningarkerfi, hakið fer þegar starfsmaður er skráður "Hættur", "Á starfslokasamningi" eða "Á eftirlaunum".
Virknin í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis hefur verið bætt þannig að þegar ráðningarmerkingu er breytt í Hættur, Á starfslokasamningi og Á eftirlaunum fer hakið úr "starfsmaður í tímaskráningarkerfi".
Kallað í tengingu við tímaskráningakerfi úr ferlinu Stofna starfsmann og Flytja umsækjanda
Nú er hægt að láta starfsmann sendast yfir í tímaskráningakerfi beint úr ferlinu Stofna starfsmann og Flytja umsækjanda. Til þess að virkja það þarf að setja ákveðnar skipanir inn í ferlið fyrir Stofnun starfsmanns og Flytja umsækjanda. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þetta og skal senda póst á service@origo.is ef óskað er eftir því að virkja þennan möguleika.
Vöntunarlisti - réttindi ekki að birta starfsmenn með útrunnin réttindi
Skýrslan Vöntunarlisti - réttindi var ekki að birta starfsmenn sem voru með útrunnin réttindi heldur eingöngu þá starfsmenn sem ekki voru með skráð tiltekin réttindi. Þetta hefur verið lagað.
Vöntunarlisti - réttindi ekki að koma upp hjá notendum með takmarkaðan aðgang
Skýrslan Vöntunarlisti - réttindi var ekki að skila niðurstöðum hjá notendum með takmarkaðan aðgang ef skýrslunni var bætt við hlutverkið hjá viðkomandi. Þetta hefur verið lagað.
Lagfæring á uppsetningu á spjöldunum Banki, Menntun, Réttindi og Grunnlaun
Lagfæring var gerð á uppsetningu á spjöldunum Banki, Menntun, Réttindi og Grunnlaun, svæði jöfnuð og spjöldin löguð til. Einnig var tekin út undirstrikun á sumum stöðum sem bauð upp á það að fara beint í stofnskrá og bæta við t.d. gráðu. Núna þarf að fara í flettivalið og bæta við þar ef við á.
Aðgangur að starfsmannatré í hliðarvalmynd
Gerðar voru breytingar á starfsmannatré m.t.t. aðgangsstýringa. Ef upp kemur að notendur með takmarkaðan aðgang fá ekki upp starfsmannatréð í hliðarvalmynd Kjarna skal senda póst á service@origo.is með upplýsingum um hvaða hlutverk viðkomandi notandi er með og við setjum inn viðeigandi stillingar. Sú vinna er þá hluti af útgáfunni og ekki verður sérstaklega útskuldað vegna þess.