Notandanafn skráð í starfsmannaspjald myndar tengingu við notanda
...
Bætt hefur verið við nýrri aðgerð undir flipanum Aðgerðir > Eyða starfsmannaupplýsingum. Með þessari aðgerð er hægt á einfaldan hátt að eyða út starfsmannaupplýsingum og skjölum fyrir starfsmenn sem hættu fyrir X mánuðum síðan að undanskildum gögnum í starfsmannaspjaldi, launamannanúmeri, starfsaldri og tenging innan fyrirtækis auk launagagna og launaseðla en grunnlaunaspjaldi er eytt. Ef nota á þessa aðgerð þarf að bæta við stillingu í Stillingar > Gildi sem Gildi > EmployeeDeleteDataWithoutPayGDPR.Months og í gildi er sett inn fjölda mánaða. Mánaðarfjöldinn segir til um mánaðarfjölda hve langt er frá því að starfsmenn hættustarfsmaðurinn hætti störfum og er miðað við frá þeirri dagsetningu sem hættur færslan í tenging innan fyrirtækis spjaldinu tekur gildi. Kerfið horfir bara á þær færslur sem eru með gildir til dagsetningu 31.12.9999.
Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við stillingar og gefið nánari upplýsingar um þessa virkni. Senda skal póst á service@origo.is ef óskað er eftir frekari upplýsingum og aðstoð.