Hægt er á einfaldan hátt að eyða út starfsmannaupplýsingum og skjölum fyrir starfsmenn sem hætt hafa störfum fyrir X mánuðum síðan undir flipanum Aðgerðir > Eyða starfsmannaupplýsingum.
Undanskilin eru gögn í starfsmannaspjaldi, launamannanúmer, starfsaldur og tenging innan fyrirtækis auk launagagna og launaseðla en grunnlaunaspjaldi er eytt.
Ef nota á þessa aðgerð þarf að bæta við stillingu í Stillingar > Gildi > EmployeeDeleteDataWithoutPayGDPR.Months og í gildi er settur inn fjöldi mánaða.
Mánaðarfjöldinn segir til um hve langt er frá því að starfsmaðurinn hætti störfum og er miðað við þá dagsetningu sem hættur færslan í tenging innan fyrirtækis spjaldinu tekur gildi. Kerfið horfi bara á þær færslur sem eru með gildir til dagsetningu 31.12.9999.