...
Þegar starfsmaður var stofnaður í gegnum ferilinn Stofna starfsmann og gildisdagsetning sett í fyrsta spjaldið Starfsmaður var sú dagsetning ekki að haldast út allt ferlið heldur kom alltaf dagurinn í dag. Þetta hefur verið lagað og núna helst gildisdagsetningin sem sett er í fyrsta spjaldið út allt ferlið.
Flýtiráðning
Undir Kjarni > Mannauður hefur verið bætt við aðgerðinni Flýtiráðning. Í þeirri aðgerð er hægt að stofna upplýsingar um starfsmann á einum skjá í stað þess að fara í gegnum ferilinn Stofna starfsmann. Í þessari aðgerð er hægt að stofna grunnupplýsingar um starfmanninn, tengingar innan fyrirtækis, orlof, lífeyrissjóð, grunnlaun, stéttarfélag og vinnutíma.