Mannauður 3.8.8 & 3.8.9

Viðbótarsvæði í listann Stöður

APPAIL-4081

Viðbótarsvæðum hefur verið bætt í listann Stöður - Fyrirtæki nr., Kostnaðarstöð nr., Starfaflokkur nr. og Starfaflokkur.

Viðbótarsvæði í listann Kostnaðarstöðvar

APPAIL-4083

Viðbótarsvæðum hefur verið bætt í listann Kostnaðarstöðvar. Listinn keyrist núna upp með dálknum Fyrirtæki og Bókhaldslykill.

Viðbótarsvæði í listann Skipulagseiningar

APPAIL-4085

Svæðinu Kostnaðarstöð nr. hefur verið bætt við listann Skipulagseiningar. Einnig var tekið út að listinn keyrist upp með svæðinu Skýring.

Viðbótarsvæði í listann Tengingar innan fyrirtækis

APPAIL-4230

Svæðinu Stjörnumerki var bætt við listann Tengingar innan fyrirtækis.

Viðhald á starfsmannaspjaldi í ferlinum Stofna starfsmann

APPAIL-4198

Ef farið var í ferilinn Stofna starfsmanna og starfsmaður fundinn sem var nú þegar til í kerfinu var ekki hægt að viðhalda gögnum í starfsmannaspjaldinu í þessum ferli. Þetta hefur verið lagað.

Greiningarlisti fyrir lífeyrissjóði

APPAIL-3866

Hliðarval > Kjarni > Mannauður > Lífeyrissjóðir.

Bætt hefur verið við tákni fyrir greiningarlista (pivot) í tækjaslá listans Lífeyrissjóðir. Nú er hægt að greina á einfaldan hátt hversu margir greiða í hvaða lífeyrissjóð, hvernig aldurskipting er á milli sjóða o.s.frv.

Skjal geti ekki verið eigendalaust í skjalaskáp

APPAIL-3982

Þegar skjal er vistað á umsækjanda/starfsmann er búið að koma í veg fyrir það að hægt sé að vista það án þess að velja starfsmann/umsækjanda og það verði þ.a.l. eigendalaust. Kerfið kemur núna með meldingu um að velja þurfi starfsmann/umsækjanda til að halda áfram.

Sendandi áminninga

APPAIL-3651

Ef netfang sendanda er skráð á sniðmát fyrir áminningar þá kemur það sem netfang sendanda á tölvupóstinn sem sendur er vegna áminninganna í stað þess netfangs sem almennt er notað fyrir tölvupósta úr Kjarna. 

Stofna starfsmann - dagsetning helst út allt ferlið

APPAIL-4217

Þegar starfsmaður var stofnaður í gegnum ferilinn Stofna starfsmann og gildisdagsetning sett í fyrsta spjaldið Starfsmaður var sú dagsetning ekki að haldast út allt ferlið heldur kom alltaf dagurinn í dag. Þetta hefur verið lagað og núna helst gildisdagsetningin sem sett er í fyrsta spjaldið út allt ferlið.

Flýtiráðning

APPAIL-3864

Undir Kjarni > Mannauður hefur verið bætt við aðgerðinni Flýtiráðning. Í þeirri aðgerð er hægt að stofna upplýsingar um starfsmann á einum skjá í stað þess að fara í gegnum ferilinn Stofna starfsmann. Í þessari aðgerð er hægt að stofna grunnupplýsingar um starfmanninn, tengingar innan fyrirtækis, orlof, lífeyrissjóð, grunnlaun, stéttarfélag og vinnutíma.

Nýtt svæði í námskeiðsspjald og -lista, Staðfest skráning

APPAIL-4263

Nýju svæði, Staðfest skráning, hefur verið bætt við námskeiðsspjaldið og listann Námskeið undir Kjarni > Mannauður. Hugsunin með þessu svæði er sú að ef starfsmenn skrá á starfsmannavefnum upplýsingar um námskeið sem þeir hafa sótt þá sé hægt að haka við þetta svæði í Kjarna þegar mannauðsdeild eða aðrir ábyrgðaraðilar hafa yfirfarið skráninguna.