Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Stillingar fyrir þessa virkni eru aðgengilegar í kerfisvalmynd undir Stillingar > Styrkir

Hér að neðan sést dæmi um hvernig stillingarnar geta litið út og fyrir neðan skjámyndina er hver dálkur í stilltöflunni útskýrður nánar. 

Image Added

  1. Í Nafn er skráð sú fyrirsögn sem á að birtast á viðkomandi flís á starfsmannavefnum. 
  2. Tegund styrks tilgreinir hvort um Styrk eða Heilsueflingu er að ræða upp á flokkunina og birtingu á flísum. 
  3. Birta segir til um hvort sækja eigi upphæð í launaskráninguUpphæð, dagsetningu í fasta launaliðiDagsetning, eða hvorugt, Ekkert
  4. Launaliður nr. segir til um hvaða launalið á að sækja upplýsingar fyrir í launaskráningu eða föstum launaliðum
  5. Launaliður sýnir nafn þess launaliðs sem skráður var í Launaliður nr. 
  6. Sniðmát vísir er númer þess sniðmáts sem að birta texta á vefnum úr. Sniðmát er aðgengilegt í Kjarni > Stofnskrár > Bréf. 
  7. Sniðmát birtir nafn viðkomandi sniðmáts. 
  8. Hlekkur er vefslóð á síðu sem hægt er að vísa á. Ef vefslóð er skilgreind þarna þá birtist hnappurinn Sækja um á viðkomandi flís á starfsmannavefnum. 
  9. Tegund skjals vísir segir til um á hvaða skjalategund skjal á að vistast á ef starfsmaður á að geta hengt viðhengi við. 
  10. Tegund skjals er nafn viðkomandi viðhengjategundar. 
  11. Netföng segir til um á hvaða netfang/netföng viðhengið á að sendast á, ef við á. 
  12. Ráðningamerking er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi ráðningarmerkingar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna. 
  13. Tegund ráðningar er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi tegundir ráðningar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna.