Lífeyrissjóði er að finna í hliðarvali > Laun > Lífeyrissjóðir
...
Almennar upplýsingar og stillingar fyrir vefskil | |
Til að byrja með eru slegnar inn allar almennar upplýsingar um sjóðinn. Númer lífeyrissjóðs er valfrjálst en mælst er til þess að notuð séu SAL númer sjóða.
| |
Ef breytingar verða á gögnum á skilagrein.is http://skilagrein.is/ þá er hægt að uppfæra slóðina með því að smella á aðgerðarhjólið hjá viðkomandi sjóði og velja "Uppfæra vefskil". Slóðirnar eru einnig uppfærðar í hvert skipti sem útborgun er lokað í Kjarna. | |
| |
Ef aðeins eitt fyrirtæki er uppsett í Kjarna eru upplýsingar um notendanafn og lykilorð skráð í fyrstu myndina sem opnast, en ef þau eru fleiri, þarf að smella á bláa textann „Skilgreina aðgang fyrirtækja" | |
Hér til hliðar er skjámynd af skilagrein.is – þarna sést að Almenni lífeyrissjóðurinn á sjóðsnúmer 1004. Lengst til hægri sést að innheimtuaðilinn á númer 1005. Í næstu línum sjáum við að séreign og endurhæfingarsjóður eru líka innheimtir af 1005, þó svo að sjóðsnúmer þeirra séu önnur. |
...
Afrita lífeyrissjóðsspjald | |
---|---|
Þegar nýr lífeyrissjóður er stofnaður eða eldri lífeyrissjóð viðhaldið þarf að gæta þess að fylla skilmerkilega inn í þá flipa sem við eiga í lífeyrissjóðsspjaldinu. Athugið vel að þegar lífeyrissjóður hefur verið afritaður, borgar sig að loka honum strax, fríska listann og opna nýja sjóðinn aftur og ljúka stillingum. Númer sjóðs á launamiða í flipanum skilagrein afritast þannig að því númeri þarf að breyta eftir að búið er að stofna lífeyrissjóðinn. |