Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Þegar búið er að útbúa lista eða skýrslur með ákveðnum gögnum er hægt að vista þær þannig að auðvelt sé að taka út sömu skýrslu aftur , með sömu eða nýjum forsendum. Hægt er að vista skýrslurnar undir Möppur > Notendur > Persónuleg mappa.

Image Added


Í tækjastikunni er að finna þessa hnappa:
Sækja sniðmát: Þessi hnappur sækir srár skrár sem hafa áður verið vistaðar.

Geyma sniðmát: Ef opnuð er eldri skrá og henni breytt er hægt að vista breytingarnar með því að ýta á þennan hnapp.
Ferli geyma/stofna skrá: Með þessum hnappi opnast ferli til að geyma og vista skrá, annaðhvort í fyrsta sinn eða til að vista afrit af eldri skrá.
Image Removed
Í ferinu er notandinn leiddur í gegnum 6 skref þar sem m.a. aðgangur að skýrslunni er skilgreindur


Image Added

Skref 1: Hér byrjar ferlið og valið hnappinn Next

Skref 2: Hér er slegið inn heitið á listanum í reitinn Skráarnafn. Í reitinn Skýring er hægt að skrá inn frekari lýsingu á listanum. Neðst á skjánum er svo hægt að setja inn hvort kalla eigi á valskjá.

Skref 3: Hér er hægt að stilla hverjir eiga að hafa aðgang að þessum lista (notandi, hópur og/eða hlutverk) og hvort þeir eigi að hafa les- og/eða skrifaðgang.

Skref 4: Hér er staðsetning á listanum valin í trénu sem er undir flipanum Möppur í hliðarvalmynd.

Skref 5: Upplýsingar um listann birtast og ef allar upplýsingar eru réttar er valið hnappinn Next.

Skref 6: Ferli er lokið og skrá hefur verið stofnuð.

Ath. ef mappa fyrir notanda er ekki til þarf að stofna hana, sjá nánar hér.