Skýrslan sem skilað er til Hagstofunnar vegna kjararannsókna er aðgengileg í flipanum XAP í kerfisvalmyndinni efst á skjánum. Skýrslan Kjararannsókn er geymd í kaflanum Annað, lengst til hægri í þeim kafla.
...
hliðarvali > Kjarni > Skýrslur.
Staðsetning skýrslu | Upphafsstillingar |
---|---|
|
Upplýsingar um starfaflokkun koma frá Hagstofu Íslands og er hægt að lesa þær skrár inn í Kjarna. Stillingar eru síðan framkvæmdar af notendum á eftirfarandi stöðum: Hliðarval > Kjarni > Fyrirtæki. Hér er byrjað á að stilla inn atvinnugreinaflokkun og sveitarfélag. Hliðarval > Kjarni > Skipulagseiningar. Atvinnugreinaflokkun og sveitarafélag afritast frá fyrirtæki, en ef þurfa þykir er hægt að yfirskrifa færslu. Hliðarval > Kjarni > Starf. Starfaflokkun er valin inn úr fellivali, einnig númer stöðu og sá menntunarflokkur sem starfið krefst. Hliðarval > Kjarni > Stöður. Númer starfaflokks afritast niður á stöðuna, en hægt er að yfirskrifa þá flokkun ef þörf er á. Hliðarval > Starfsmenn > Tengingar innan fyrirtækis. Síðasti hlekkurinn er ávallt starfsmaðurinn sjálfur. Hægt er að yfirskrifa allar 5 flokkanirnar hér ef þörf er á, þ.e. Númer starfaflokkunar, atvinnugreinaflokkunar, stöðu, menntunar eða sveitafélags. |
Þegar smellt er á Kjararannsókn birtist valskjár með upplýsingum um fyrirtæki og valda útborgun. |
Ef allar upplýsingar í þessum glugga eru réttar, þ.e. rétt fyrirtæki og rétt útborgun er valið sækja. |
Ef engar villur eru í skránni, þá kemur upp gluggi með skilaboðum um að skýrslan sé sett í bið. Þeim glugga er lokað og þá kemur skýrslan sjálf á skjáinn til afstemmingar. |
Starfsmenn Hagstofu eru sáttir við að fá skýrslu með villum, þeir gera ekki kröfu um að farið sé lengra. | |
|
Kennitölur eru brenglaðar til samræmis við það sem sent verður til Hagstofunnar, en hægt er að draga inn nöfn starfsmanna til að átta sig betur á því sem á skjánum er. Það er gert með því að hægrismella í kennitölusvæðið og velja þar Sýna lista yfir svið.
|
Ef skýrslan stenst skoðun er smellt á hnappinn Vista skrá, neðst vinstra megin í skýrslunni. |
Kjarni vistar skjalið sem textaskrá og gefur skjalinu nafnið KRN og númer útborgunar, en þessu nafni má breyta um leið og skýrslan er vistuð.
|
sambærilegt við fyrirtækjalista |
Villur í skýrslu Ef aftur á móti það koma villur, þá þarf að lagfæra það sem útaf bar og keyra skýrsluna síðan aftur. |
Til að leysa villuna Starf fannst ekki, er starfsmaður fundinn og opnað spjaldið Tengingar innan fyrirtækis. Þar er flipi merktur Kjararannsókn. Þær upplýsingar sem hér eru, erfast af starfi viðkomandi.
|
Til að leysa villuna Orlofsmerking fannst ekki opnað spjaldið Orlof hjá viðkomandi starfsmanni þar sem valin er inn reikniregla orlofs og skráður inn réttur orlofsflokkur. |
|