Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Reiknað stöðugildi þegar starfshlutfall er núll

...

Ef orlof lagt í banka fer í mínus á launamanni þá kemur nú villumelding á launalið 9998

Villuskilaboð við handskráningu

APPAIL-5136

Þegar handskráðir eru launaliðir með reikni 100, 110, 300, 400 og 500 þá kemur rautt X í svæðið Stofnun nr. þar til númer stofnunar/innheimtuaðila er skráð.

Sama er ef skráð er númer sem er ekki til í Kjarna.

Image Added

Image Added

Bankaupplýsingar stéttarfélaga og innheimtna

...

Hægt er að skrá bankaupplýsingar stéttarfélaga í stofnupplýsingum stéttarfélaga.  Heiti útibúa kemur nú fram þegar bankaupplýsingar eru skráðar í stofnupplýsingum lífeyrissjóða, stéttarfélaga og innheimtna.  Skráðar bankaupplýsingar koma nú fram á öllum skilagreinum.

Útreikningur persónuaflsáttar þegar eru tvö launamannanúmer á sitt hvoru tímabili

APPAIL-5132

Ef starfsmaður er með annað launamannanúmerið á fyrirfram greiddum launum og hitt á eftirá þá skiptist nú persónuaflsátturinn og greidd staðgreiðsla eftir greiðsluformi launamanns.

Skattkort eftir uppfærslu launa 'Síðast notað'

APPAIL-5367 APPAIL-5387

Ef skattkort er skráð út í 'Skattkort út' um miðjan mánuð t.d 15.10.2018 þá kemur sú dagsetning í ´Síðast notað' þegar útborgun er lokað.  Persónuafsláttur reiknast fyrir þann dag sem skattkortið er skráð út, í þessu dæmi til og með 15.10.2018.

Skattkort - svæðið 'Skattkort inn' fjarlægt

APPAIL-5564

Svæðið 'Skattkort inn' í skattkortaspjaldi hefur nú verið fjarlægt úr skjámynd og er ekki notað á neinn hátt í útreikningi persónuaflsáttar.  Ef óskað er eftir að nýta þetta svæði til upplýsinga þá geta ráðgjafa aðstoðað við að láta þetta svæði vera sýnilegt fyrir hvern og einn notanda.

Image Added

75% reglan fyrir gjaldheimtugjöld til Tollstjóra

APPAIL-4565

Ef starfsmaður átti inni eldri ónýttan persónuafslátt var sú upphæð ekki að koma með til útreiknings á 75% reglunni, þessu hefur nú verið breytt þannig að eldri afsláttur kemur með til útreiknings.  75% reglan er ( heildarlaun * 75% ) -  ( meðlag + iðgjald í almennan sjóð + greidd staðgreiðsla ).

Einingar elta daga - greidd stöðugildi á ekki vera stærra en 1,00

APPAIL-4816

Reiknivélin passar nú að launaliðir sem eru merktir einingar elta daga verði ekki með meira en 1,00 í Tímaeining í skráningu launa þegar launatímabili er skipt upp á milli launaliða.  Þetta á við um þá launaliði sem eru í stofnupplýsingum merktir sem Eining, hakað við Stöðugildi og Einingar elta  daga.  T.d ef Mánaðarlaun er frá 1.10.2018 - 15.10.2018 og Mánaðarlaun veikindi frá 16.10.2018 - 31.10.2018 er passað að þessir tveir launaliðir verði samtals ekki með meira en 1,00 í Tímaeining.

Áramótastaða á launaseðli - röðun launaliða 

APPAIL-5359

Nú er hægt að ráða röðun safnfærslna í áramótastöðu á launaseðli.

Kjararannsóknarskýrsla skilast niður á launamannanúmer

APPAIL-5036

Launagreining Kjararannsóknar er nú greinanleg niður á launamannanúmer og skilar áfram dulkóðaðri kennitölu.

Svæðum bætt inn í skýrsluna Jafnlaunavottun

APPAIL-5506

Eftirtöldum svæðum hefur verið bætt inn í skýrsluna:

Starfsaldur launa ár, Starfsaldur ár-mm-dd, Starfsaldur launa ár-mm-dd og Ráðningardagsetning.

Skattaskilgreining - stilling nýtist fyrir öll fyrirtæki

APPAIL-5358

Ef ekki er til skattaskilgreining fyrir fyrirtæki þá er stilling fyrirtækis 1 notuð.  Hægt er setja inn stillingu í Stillingar Gildi ef aðalstilling er fyrir annað fyrirtæki en númer 1 "Poet.PayTaxSteps.OrgCompanyID" númer fyrirtækis er þá sett í Gildi.

Gjaldheimtugjöld - Þegar greitt

APPAIL-5197

Sú upphæð sem dregin er af launum launþega vegna gjaldheimtugjalda uppfærist við lokum útborgunar og kemur fram í dálkinum "þegar greitt" í gjaldaspjaldinu.

Image Added

Ef um tegundina "Eingreiðsla" að ræða munu eftirstöðvar gjalda ekki koma með í næstu launavinnslu.

En ef verið er að nota tegundina "Dreifð greiðsla" þá koma eftistöðvarnar með í launavinnslu þegar upphaflega greiðslurnar hafa verið afdregnar.

Launahópar - Hliðarval  -  Kjarni  laun

APPAIL-5213

Bætt hefur verið inn í Hliðarval - Kjarni - Laun  Lista yfir launahópa.  Til að sjá hvaða launamenn tilheyra hverjum launahópi er gott að taka út lista yfir Grunnlaun.

Launaseðlar - útprentun

APPAIL-3398

Bætt var við vali um röðun á útprentun launaseðla á skjá. Sjálfvalið kemur Nafn, en í fellivali er val um Starfsmannanúmer, Kostnaðarstöð og Skipulagseiningu.

Image Added

Launahópar - bætt í valmynd í hliðarvali

APPAIL-5213

Launahópar eru nú aðgengilegar í listum í hliðarvali,Kjarni, Laun, Launahópar.

Hlekkur á leiðbeiningar í handbók er hér.

Image Added

Orlofsstaða - skýrsla

APPAIL-5306

Hægt er að komast í skýrsluna 'Orlofsstaða' úr hliðarvalmymd undir Laun.  Nú er hægt að flytja skýrsluna yfir í excel og bætt var við svæðum inn í skýrsluna en hægt er að bæta þeim við með því að fara í

 Image Added


Lagfæring á tímaeiningu ef starfsmaður er í fleirra en einu starfi

APPAIL-5566

Afrúninings útreikningur hefur verið lagfærður hjá starfsmönnum sem eru í fleirra en einu starfi þannig að tímaeining verður ekki stærri en 1.


Launamiðar - Kennitölu launamanna bætt við lista og skýrslur

APPAIL-3798

Nú hefur kennitölu launamanna verið bætt inn í alla skýrslugerðar möguleika við launamiðavinnslu.


Launamiðar - Aðgerðar glugga lokað

APPAIL-5600

Aðgerðarglugginn sem opnast þegar launamiðar eru undirbúnir lokast núna þegar aðgerð er lokið.


Kjararannsókn - Nýir starfaflokkar

APPAIL-5615

Það eru 13 nýir starfaflokkar komnir hjá kjarannsókn sem bæta þarf inn í  Kjarna

Til að skrá þá inn í Kjarna þarf keyra upp skipun:
PayResearch.Select

og bæta eftirtöldum flokkum inn í töfluna:

1210.64 aðstoðarforstöðumaður
1232.06 mannauðsstjóri
2331.21 leiðbeinandi 3 í grunnskóla
2331.22 leiðbeinandi 4 í grunnskóla
2419.26 lánastjóri í banka
2429.16 persónuverndarfulltrúi
3418.06 ráðgjafi í banka
3418.07 viðskiptastjóri í banka
4142.04 póstafgreiðslumaður
4222.26 hraðþjónustufulltrúi í banka
5131.32 almennur starfsmaður í grunnskóla
5131.33 háskólamenntaður starfsmaður A
5131.34 háskólamenntaður starfsmaður B

Ef lesa á inn starfsheitin á skipunin að vera
PayResearch.Import og *stofna *færslurnar sem eru í meðfylgjandi skjali "Ný starfaheiti innlestur"