Jafnlaunagreining BSI - Upphæðir miðað við 100% launa
...
Breyting var gerð á skýrslunni þannig að núna er deilt með greiddum stöðugildum í þær upphæðir sem koma í reitinn samtals í skráningu launa. Þetta er gert til þess að fá allar upphæðir miðað við 100% laun í skýrsluna.
Innheimtustofnun sveitafélaga eru farin að taka við rafrænum skilagreinum með vefskilum
Sjá nánari upplýisngar í handbók 7. Gjaldheimtur í Skila
Bankaskrá með úttektarreikningi
Það er komið nýtt XAP-gildi sem heitir "Xap.BankStatementDisk.AddWithdrawal.[OrgCompanyID]" þar sem [OrgCompanyID] inniheldur númer viðkomandi fyrirtækis. Með því að stofna XAP-gildið "Xap.BankStatementDisk.AddWithdrawal.1" með gildinu "true" er búið að virkja það að útgreiðslureikningur myndist í bankaskrám í fyrirtæki númer 1. Bankaupplýsingar eru skráðar í stofnupplýsingum fyrirtækis.
...
Tveimur nýjum svæðum hefur verið bætt við grunnlaunaspjaldið, Frávik - skýring og Frávik - frekari upplýsingar. Tilgangur þessara svæða er að hægt sé að skrá rökstuðning á því hvers vegna ákveðnir starfsmenn eru fyrir utan launaramma þeirrar stöðu sem þeir gegna. Frávik - skýring er hugsað fyrir stuttan texta og það svæði verður aðgengilegt í jafnlaunavottunarskýrslu. Frávik - frekari upplýsingar er notað ef skrá þarf ítarlegri upplýsingar. Sjá upplýsingar um skýrslu Jafnlaunavottun og launaskýrslur
Starf í jafnlaunavottunarskýrslu BSI
...
Fastir liðir - spjald starfsmanna
Uppsetningu spjaldsins Fastir liðir var breytt þannig að svæðið Sækja í kemur sjálfvalið í listanum á hægri hlið. Svæðið er skráningarsvæði og hægt að velja úr fellivala fellivali ef það nota skal notað þennan launalið fyrir annað en almenna launaskráningu.
Einnig var svæðið fyrir launalið í skráningarhluta spjaldsins stækkað til að gera það læsilegra.
Frítekjumark barna
Nú er hægt að skilgreina frítekjumark barna undir skattaprósentur.
Eftir að það hefur verið skilgreint þá á frítekjumark fyrir skattaútreikning að reiknast sjálfkrafa fyrir starfsmenn undir 16 ára.
Sjá nánari lýsingu í handbók: Frítekjumark barna.