Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Við uppfærslu á DevExpress varð breyting á stillingum dálkalista varðandi birtingu KPI (Gul, rauð og græn ljós í formúlu dálkum) í dálkalistum. Nú er mun einfaldara að setja ljósin inn og taka þau út aftur. Hægri smella þarf á formúlu dálkinn og velja “Setja sem KPI” til að fá ljósin inn. Til þess að slökkvá á birtingu ljósa er hægri smellt í sama dálk og valið “Slökkva á KPI”. Sjá nánari leiðbeiningar varðandi dálkalista hér:Dálkalistar

Töflusaga launamanna - Listi sem sýnir allar launahækkanir launamanna útfrá launatöflum

APPAIL-8176

Útbúin hefur verið nýr listi, töflusaga launamanna sem sýnir allar launahækkanir launamanna útfrá launatöflum sem skráðar eru á þá í grunnlaunaspjöldum. Sjá nánar hér:Töflusaga launamanna

Ef starfsmenn með takmarkaðan aðgang að Kjarna eiga að fá aðgang að listanum Töflusaga launamanna þarf að bæta skipun í hlutverkið sem viðkomandi er með. Senda þarf beiðni á service@origo.is til að fá aðstoð með það.

Sveitarfélagamiðar

APPAIL-3546

Þegar launamiðar eru sendir til Ríkisskattstjóra er nú hægt að velja um að senda svo kallaða Sveitarfélgamiða Sveitarfélagamiða vegna félagslegrar aðstoðar. Til þess að Sveitarfélagamiðar myndist í Kjarna þarf að skilgreina í starfsmannaspjaldi launþega að hann sé að fá Félagslega aðstoð. Það er gert undir flipanum Launakerfi.

...

Dagsetningar úr Kjarna yfir í Tímon

APPAIL-8035

Kjarni var að senda dagsetningu breytinga sem gerðar voru á spjaldinu Tenging innan fyrirtækis í svæðið Ráðningardagur í Tímon sem gerði það að verkum að útreikningur á veikindarétti var ekki réttur. Þessu hefur nú verið breytt þannig að í svæðið Ráðningardagur í Tímon eru núna fluttar dagsetningar úr svæðinu Viðmið til launa frá Kjarna. Einnig hafði virknin milli kerfa verið þannig að ef starfsmaður var að flytjast á milli hópa í Tímon kom gildisdagur hóspins fram sem breytingardagsetningin á færslunni í Tenging innan fyrirtækis frá Kjarna. Þetta hefur verið lagfært og núna skilar Kjarni réttum gildisdegi ef skipulagseiningu er breytt í Tenging innan fyrirtækis. Sú breyting veldur því að ef línu er eytt úr spjaldinu Tenging innan fyrirtækis þá skilar Tímon tenging villu. Lausnin við því er að finna færsluna í Tímon fyrir hópinn sem verið var að eyða hjá starfsmanninum og eyða henni einnig þeim megin.