Í Kjarna er þjóðskráruppfærsluforrit aðgerð sem uppfærir heimilisföng starfsmanna, þjóðerni og kyn m.v. breytingar sem gerðar hafa verið á þjóðskráí þjóðskrá.
Aðgerðina er að finna í kerfisvalmynd undir Aðgerðir > Þjóðskrá - Uppfæra starfsmenn
Hægt er að keyra aðgerðina fyrir alla starfsmenn með ráðningarmerkinguna Í starfi eða aðra tiltekna ráðningarmerkingu. Einnig er hægt að keyra aðgerðina fyrir valinn starfsmann.
Þessa aðgerð er hægt að setja í sjálfvirka keyrslu þannig að hún keyri t.d. alltaf sjálfkrafa mánaðarlega. Endilega sendið póst á service@origo.is ef þið óskið eftir aðstoð ráðgjafa Origo við að setja upp sjálfvirka keyrslu fyrir þjóðskráruppfærsluna.