Styrkir og Heilsuefling á starfsmannavef
Upplýsingum um Styrki og Heilsueflingu hefur verið bætt við starfsmannavefinn. Hér er að finna nánari upplýsingar um þessa virkni. Athugið að þessar upplýsingar birtast sjálfkrafa eftir útgáfu 19.1.1 og setja þarf inn stillingar til þess að fela þessa virkni ef ekki er vilji fy fyrir því að birta hana. Stillingin Employee.Web.Dashboard stýrir því hvort flísar með þessum upplýsingum birtist á upphafsvalmynd og stillingin Employee.Web.Hide.BenefitAgreements felur þessar upplýsingar undir Valmynd. Þessar stillingar eru settar inn í Vefgildi í kerfisvalmynd.
Til að notendur sem eingöngu eru með starfsmannavefshlutverkið fái aðgang að þessum upplýsingum þarf að uppfæra hlutverkið fyrir starfsmannavefinn. Senda þarf beiðni á service@origo.is með ósk um breytingu á hlutverki.
Starfsmannaleit skili niðurstöðum þótt millinafn sé ekki í leit
...
Þegar starfsmannavefurinn er á ensku þá vantaði inn enska þýðingu á frammistöðumatið, "Ekki er neitt frammistöðumat skráð fyrir árið 2019". Enskri þýðingu hefur verið bætt við.
Tvískráningar á námskeið - starfsmannavefur virkar ekki ef búið er að skila námskeiðsmati
Ef starfsmaður var tvískráður á námskeið og hann skilaði námskeiðsmati fyrir þetta tiltekna námskeið komst hann ekki inn á starfsmannavefinn eftir að hafa skilað námskeiðsmatinu. Þetta hefur verið lagað.