Launaliðir eru hjartað í hverju launakerfi en ýmsar stillingar eru á hverjum og einum launalið sem ákvarða eiginleika hans og hvernig afreiknaðar færslur á borð við launatengd gjöld skulu reiknast. Aldrei má eyða út launalið sem hefur verið notaður í útborgun.
...
Almennt | |
---|---|
Stöðugildi: Hak í þessum reit gefur upplýsingar um að þessi launaliður skuli notaður til útreiknings á stöðugildum. Athugið að setja þarf reikni nr. 700 á launalið svo hann telji til stöðugilda Hlutfall sótt úr vinnutímaspjaldi: Ef hakað er í þennan reit þá verður virknin þannig að ef þessi launaliður er skáður í Fasta liði mun kerfið sækja hlutfall í vinnutímaspjald og fylla það út í gr. einingu. Þá þarf ekki að breyta hlutföllum á tveimur stöðum ef starfsmaður breytir um starfshlutfall. Sérstaklega gott að nota hakið fyrir mánaðarlunaliði sem skráðir eru í fasta liði. Einingar elta daga: Ef hakað er í þennan reit þá hlutfallast tímaeining út frá skráðri dagsetningu í launaskráningu. |
|
...
Reikningur | |
---|---|
Stillt er á hvern launalið hvaða afreiknuðu færslur skuli reiknast. Aðrar stillingar geta haft áhrif til viðbótar. Eftirfarandi reiknar eru í boði: 100 Staðgreiðsla - staðgreiðsluliðir 9141 og 9142 reiknast af þessum launalið út frá stillingum í Skatthlutföllum. 110 Staðgreiðslu afsláttur - afsláttarliðir 9110, 9111, 9120 og 9121 reiknast af þessum launalið ef starfsmaður er með skráð skattkort. 200 Orlofsútreikningur - launaliðir 9210 Orlof á laun eða 9280 Orlofstímar reiknast af þessum launalið eftir skráningum í orlofsspjald starfsmanns og reiknitegund launaliðar. 300 Lífeyrissjóður - launaliðir 9300 til 9399 reiknast á þennan launalið, eftir þeim sjóði sem skráður er á starfsmann. 400 Stéttarfélag - launaliðir 9400 til 9499 reiknast á þennan launalið, eftir því félagi sem skráð er á starfsmann.. 500 Tryggingagjald - launaliður 9501 reiknast á þennan launalið. 600 Gjaldheimtugjöld - færir þennan launalið inn í 75% reikniregluna í reiknivélinni. 700 Stöðugildi - reiknar greidd stöðugildi í útborgun, athuga að rétt merking sé í Einingar/Tímar. Ath. líka að ef launaliður er merkt tímar, þá þarf starfsmaður að vera með skráða tíma í Vinnutímaspjaldið, því það er notað til að finna rétta deilitölu. Hægt er að slá inn skipunina PayWageCalc.List til að fá upp skýrslur yfir hvaða launliðir eru skráðir á hvern reikning. |
...
Reikniform | |
---|---|
|
Launaliðir - Tafla/Seðill/Hópar | |
---|---|
Tegund launatöflu ræður því hvert upphæðir launaliðar eru sóttar. Algengast er að valið sé "Sótt í launatöflu" eða "Fasti" Sótt í launatöfu er notað ef sækja á annað hvort hlutfall eða fasta í launtöflu. Fasti er notað ef handskrá inn fjárhæð launaliða þar sem hún er breytileg. Ef valin er tegundin "launaliður" þá er hægt að skrá í svæðið "Launaliður í launatöflu" þann launalið sem tiltekinn launaliður á að reikanst eins og. Undir "Launaseðill" í spjaldinu eru settar inn stillingar um hvort og hvernig launaliðurinn birtist á launaseðlim starfsmanna. |
Uppsetning launaseðils
Launaseðilsuppsetning er búin til fyrir hverja tegund birtingar á launaseðli. T.d er hægt að vera með launaseðilsuppsetningu sem gildir almennt fyrir launaliði og aðra sem er fyrir Iðgjald í lífeyrissjóði og stétarfélag. Hægt er að vera með eins margar uppsetningar og þurfa þykir, alltaf er hægt að stofna nýjar og eða breyta, en það er gert í hliðarvali Kjarna > Laun > Listar og Stofnskrár > Launaseðill - Uppsetning.
...