Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Stofnspjald auglýsingar skiptist í auglýsing, spurningar og aðgangur.  

Auglýsing

Í auglýsingaflipann eru skráðar allar grunnupplýsingar um starfið sem á að auglýsa. 

Nafn: Heiti auglýsingar

Gildistími: Hér er skráður sá tími sem auglýsingin á að birtast á umsóknarvefnum. Auglýsingin birtist á miðnætti á þeim degi sem valinn er í reitinn Umsóknarfrestur frá og með og er út daginn sem valinn er í Umsóknarfrestur til og með.

Birta á vef: Hér er valið hvort birta eigi upplýsingar um umsóknarfrest, tengilið eða texta auglýsingar á vef. Er hakið tekið af ef ekki á að birta upplýsingar.

Birting auglýsingar: Hér er valið hvort birta eigi auglýsinguna á innri og/eða ytri vef. Þeir aðilar sem sjá um birtingu auglýsinga á heimasíðu/innri vef sjá þá um að birta viðeigandi auglýsingar á réttum stöðum, m.v. external/internal merkingu í XML.

Fyrirtæki: Ef um samstæðu er að ræða er hægt að velja hér hvaða fyrirtæki um ræðir. Ef hvert fyrirtæki er með sér umsóknarvef þá ræður valið hér á hvaða vef umsóknin birtist.

Staða auglýsingar: Hér er hægt að halda utan um hver staðan á auglýsingunni er.

Flokkun auglýsingar: Hér er hægt að flokka auglýsinguna eftir ákveðinni flokkun sem hægt er svo að birta sem flokkun á auglýsingu á heimasíðu viðskiptavinar. Flokkun auglýsingar er RCAdvertGroupingID í XML.

Tengiliður: Hér er hægt að skrá tengilið auglýsingar.

Samstarfsaðili: Hér er hægt að skrá upplýsingar um samstarfsaðila.

Staðfestingarbréf: Þegar umsækjandi sendir inn umsókn birtist staðfestingartexti þess efnis á skjánum hjá viðkomandi og umsækjandi fær einnig sendan tölvupóst með staðfestingarbréfi.
Í Stillingar > Gildi er stilling sem segir til um hvaða bréf það er sem á að birtast. Stillingin er XapEmailTemplate.SuccessLetter
Ef að notandi vill að annað en það bréf sem stillt er í Stillingar > Gildi eigi að birtast er hægt að yfirskrifa þá stillingu á ákveðna auglýsingu með því að velja viðeigandi bréf í þessum flipa. Ef ekkert er valið þá sendir kerfið það bréf sem er stillt í Stillingar > Gildi. 

Lausar stöður: Hér er hægt að halda utan um hversu margar stöður á að ráða í.

Auglýsingatexti: Hér er skráður texti auglýsingarinnar. Hann er hægt að afrita úr t.d. word og forma í textaglugganum.



Image RemovedImage Added

Ráðningalausnina er hægt að nýta fyrir fleiri en eitt fyrirtæki í samstæðu en birta eingöngu auglýsingar hvers fyrirtækis á viðkomandi heimasíðu.

Til að geta birt viðeigandi auglýsingar á heimasíðum fyrirtækjanna þá þarf að tengja viðkomandi fyrirtæki á auglýsingu. Það er síðan vefslóð sem skilar lista yfir allar auglýsingar sem tilheyra viðkomandi fyrirtæki.

Slóðin er https://vidskiptavinurapi.umsokn.is/api/RCAdvertCompanies/1, þar sem vidskiptavinur er viðeigandi fyrirtæki og 1 stendur fyrir númer fyrirtækis. Vefdeildir fyrirtækja geta notað þennan lista til að birta yfirlit yfir opnar auglýsingar á heimasíðu.

...