Stofnspjald auglýsingar

Stofnspjald auglýsingar skiptist í auglýsing, spurningar og aðgangur.  

Auglýsing

Í auglýsingaflipann eru skráðar allar grunnupplýsingar um starfið sem á að auglýsa. 

Nafn: Heiti auglýsingar

Gildistími: Hér er skráður sá tími sem auglýsingin á að birtast á umsóknarvefnum. Auglýsingin birtist á miðnætti á þeim degi sem valinn er í reitinn Umsóknarfrestur frá og með og er út daginn sem valinn er í Umsóknarfrestur til og með.

Birta á vef: Hér er valið hvort birta eigi upplýsingar um umsóknarfrest, tengilið eða texta auglýsingar á vef. Er hakið tekið af ef ekki á að birta upplýsingar.

Birting auglýsingar: Hér er valið hvort birta eigi auglýsinguna á innri og/eða ytri vef. Þeir aðilar sem sjá um birtingu auglýsinga á heimasíðu/innri vef sjá þá um að birta viðeigandi auglýsingar á réttum stöðum, m.v. external/internal merkingu í XML.

Fyrirtæki: Ef um samstæðu er að ræða er hægt að velja hér hvaða fyrirtæki um ræðir. Ef hvert fyrirtæki er með sér umsóknarvef þá ræður valið hér á hvaða vef umsóknin birtist.

Staða auglýsingar: Hér er hægt að halda utan um hver staðan á auglýsingunni er.

Flokkun auglýsingar: Hér er hægt að flokka auglýsinguna eftir ákveðinni flokkun sem hægt er svo að birta sem flokkun á auglýsingu á heimasíðu viðskiptavinar. Flokkun auglýsingar er RCAdvertGroupingID í XML.

Tengiliður: Hér er hægt að skrá tengilið auglýsingar.

Samstarfsaðili: Hér er hægt að skrá upplýsingar um samstarfsaðila.

Staðfestingarbréf: Þegar umsækjandi sendir inn umsókn birtist staðfestingartexti þess efnis á skjánum hjá viðkomandi og umsækjandi fær einnig sendan tölvupóst með staðfestingarbréfi.
Í Stillingar > Gildi er stilling sem segir til um hvaða bréf það er sem á að birtast. Stillingin er XapEmailTemplate.SuccessLetter
Ef að notandi vill að annað en það bréf sem stillt er í Stillingar > Gildi eigi að birtast er hægt að yfirskrifa þá stillingu á ákveðna auglýsingu með því að velja viðeigandi bréf í þessum flipa. Ef ekkert er valið þá sendir kerfið það bréf sem er stillt í Stillingar > Gildi. 

Lausar stöður: Hér er hægt að halda utan um hversu margar stöður á að ráða í.

Auglýsingatexti: Hér er skráður texti auglýsingarinnar. Hann er hægt að afrita úr t.d. word og forma í textaglugganum.



Ráðningalausnina er hægt að nýta fyrir fleiri en eitt fyrirtæki í samstæðu en birta eingöngu auglýsingar hvers fyrirtækis á viðkomandi heimasíðu.

Til að geta birt viðeigandi auglýsingar á heimasíðum fyrirtækjanna þá þarf að tengja viðkomandi fyrirtæki á auglýsingu. Það er síðan vefslóð sem skilar lista yfir allar auglýsingar sem tilheyra viðkomandi fyrirtæki.

Slóðin er https://vidskiptavinurapi.umsokn.is/api/RCAdvertCompanies/1, þar sem vidskiptavinur er viðeigandi fyrirtæki og 1 stendur fyrir númer fyrirtækis. Vefdeildir fyrirtækja geta notað þennan lista til að birta yfirlit yfir opnar auglýsingar á heimasíðu.

Spurningar í auglýsingu

Í flipanum spurningar eru valdar inn þær spurningar sem á að spyrja um í viðkomandi auglýsingu. Auglýsingar er hægt að stofna frá grunni eða byggja þær á spurninga sniðmátum. Hægt er að velja eitt eða fleiri sniðmát inn í auglýsingu og spurningahópum og viðbótarspurningum er bætt inn eftir þörfum.


Í spurningaglugganum birtast spurningarnar sem valdar eru inn vinstra megin og þegar smellt er á tiltekna spurningu birtast frekari upplýsingar um hana og stillingar hægra megin. 


Spurningarót: Spurningarótin er efst í hverri spurningu og undir hana koma síðan spurningahópar og sniðmát. 


Spurningasniðmát: Spurningasniðmát eru sniðmát sem búið er að skilgreina fyrirfram og innihalda algengar spurningar í spurningahópum. Dæmi um spurningasniðmát er Menntun, en þegar það sniðmát er valið inn í auglýsingu birtast allar helstu spurningar um menntun umsækjanda. Ef texta spurningar í sniðmáti eða stillingum hennar er breytt inni í tiltekinni auglýsingu hefur það ekki áhrif á grunn sniðmátið í kerfinu. 


Spurningahópur: Spurningahópur er notaður til að grúbba saman ákveðnar spurningar. Einstaka spurningar er valdar inn í spurningahóp. Hvert spurningasniðmát er einn spurningahópur. Þannig er sniðmátið Menntun t.d. spurningahópur. Það getur verið gott að stofna t.d. spurningahópinn „Annað" fyrir ýmsar spurningar sem ekki tengjast spurningasniðmátunum. Á meðfylgjandi mynd má m.a. sjá spurningahópinn Annað þar sem settar eru spurningar á borð við hvar viðkomandi vill vinna, hvenær hann getur hafið störf o.s.frv. 


Í stillingarglugganum hægra megin birtast þær stillingar sem skilgreindar voru þegar spurningin var stofnuð í listanum spurningar. 


Dæmi um spurningar sem eru skilyrtar eru nafn, kennitala og símanúmer.

 
Dæmi um spurningar sem má svara oftar en einu sinni eru spurningar um menntun, starfsferil o.s.frv. 
Hægt er að yfirskrifa texta spurningarinnar í reitum „Texti" en þar er settur sá texti sem birtist við spurninguna á vefnum. 


Í dæminu hér til hliðar má sjá spurningu sem hefur spurningategundina má velja eitt svar. Á bak við þá spurningu eru svarmöguleikarnir Nei eða Já.