Upphafsvalmynd ráðningar
Þegar smellt er á Ráðningar í hliðarvalmyndinni í Kjarna opnast upphafsvalmynd þar sem finna má lista yfir nýjustu auglýsingar og umsóknir í kerfinu.
Hægt er að hafa auglýsingahluta upphafsvalmyndarinnar ítarlegri og þarf þá að setja inn viðeigandi stillingar, sjá nánari upplýsingar í stillingahlutanum hér að neðan. Svona lítur þessi ítarlega valmynd út:
Hægt er að komast inn í listann Auglýsingasvör beint frá upphafsvalmyndinni. Viðkomandi auglýsing er valin og smellt er á hnappinn Auglýsingasvör: Ef tvísmellt er á auglýsingu á upphafsvalmynd er farið inn í stofnspjald viðkomandi auglýsingar og ef tvísmellt er á einn af nýjustu umsækjendunum kemur upp Heildaryfirlit umsækjanda hjá þeim umsækjanda sem valinn er. |
Stillingar á upphafsvalmynd | |
---|---|
Það er stillingaratriði hvort einföld upphafsvalmynd fyrir auglýsingarnar er birt eða önnur ítarlegri. Einnig er stillingaratriði hversu gamlar auglýsingar og umsóknir birtast á yfirlitinu á upphafsvalmyndinni. Aldur auglýsinganna miðast við umsóknarfrestinn. Stillingarnar er að finna í kerfisvalmynd undir Stillingar > Gildi. | |
Stillingin RCAdvertStartupList með gildið RCAdvertStartupMore.List er sett inn til þess að kveikja á að ítarlegri upphafsvalmynd fyrir auglýsingarnar. Hægt er að stilla inn að 1 eða 2 dálkar birtist fyrir ákveðnar stöður umsókna og að þessir dálkar dragist frá lausum stöðum ásamt ráðningarmerkingunni til að mynda niðurstöðuna í Eftirstöðvar. Stilling fyrir fyrri dálkinn er RCStartup.StatusColumn.1 Stilling fyrir seinni dálkinn er RCStartup.StatusColumn.2 Í Gildi er sett inn númer þeirrar Stöðu umsóknar sem á að birta. Númer Stöðu umsókna eru aðgengileg í hliðarvalmynd Kjarna undir Kjarni > Ráðningar > Staða umsóknar. Fyrirsagnir dálkanna verða nöfn á þeim stöðum umsókna sem stilltar eru inn. | |
Auglýsingar: RCStartup.RCAdvertDays Í dæminu hér til hliðar er verið að birta auglýsingar 10 daga aftur í tímann og 15 nýjustu umsóknirnar. |