Tölvupóstsendingar við breytingu á stöðu umsóknar
Hægt er að láta Kjarna senda tölvupóst á skilgreinda aðila, t.d. launadeild, við ráðningu umsækjanda, sjá hér.
Einnig er hægt að láta Kjarna senda tölvupóst þegar ný umsókn berst eða þegar breytingar verða á stöðu umsóknar, ef tilkynna þarf ákveðnum aðilum um breytingar á ferli umsóknarinnar. Til þess að virkja slíkar tölvupóstsendingar þarf að setja inn eftirfarandi stillingar í Stillingar > Gildi
Nafn | Gildi | Útskýring |
---|---|---|
Email.RCApplicationStat.6 | haa@origo.is,ardisb@origo.is | Netföng viðtakenda eru aðgreind með kommu ef þau eru fleiri en eitt |
XapEmailTemplate.ApplicationStat.6 | 53 | Númer bréfsins sem senda á út |
Í dæminu hér að ofan á stillingin við fyrir stöðu umsóknar nr. 6.
Númer á stöðu umsóknar eru aðgengileg í listanum Kjarni > Ráðningar > Staða umsóknar
Bréf eru stofnuð í Kjarni > Ráðningar > Bréf. Athugið að bréfið þarf að innihalda sendanda. Ekki er þörf á að vera með tegund texta á bréfinu.