Samskipti við umsækjendur
Á meðan á umsóknarferlinu stendur þurfa fyrirtæki oft að hafa samskipti við umsækjendur og sömuleiðis hafa umsækjendur oft samband við fyrirtæki til að grennslast fyrir um stöðuna á umsóknarferlinu. Í Kjarna er hægt að halda utan um og skrá öll þessi samskipti. Í spjaldinu Samskipti er hægt að sjá sögu allra samskipta við umsækjanda, hvort sem honum var sent bréf út frá sniðmáti eða sendur tölvupóstur án sniðmáts auk þess er hægt að stofna viðbótarfærslur í samskiptaspjaldið, t.d. ef haft er samband við umsækjanda eða ef umsækjandi hefur samband. |