Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Þátttakendur

Í þátttakenda flipanum er settar inn upplýsingar um lágmarks- og hámarksfjölda þátttakenda. Þar Sjálfgefin hámarksfjöldi þátttakenda er 15 þegar námskeið er stofnað en hægt er að skilgreina annan sjálfgefin fjölda með stillingu.

Í þátttakendaflipanum er einnig hægt að handskrá inn þátttakendur með því að velja þá úr starfsmannalista (með því að smella á græna plúsinn) eða með því að slá inn hluta af kennitölu, nafni eða starfsmannanúmeri. Auk þess er hægt að leita eftir ákveðnu fyrirtæki, ákveðinni skipulagseiningu eða ákveðinni stöðu og skrá alla í einu sem tilheyra þeim leitarskilyrðum.

Ef leitað er eftir nafni starfsmanns þá birtast allir starfsmenn óháð ráðningarmerkingu en ef leitað er eftir fyrirtæki, skipulagseiningu eða stöðu birtast bara virkir starfsmenn (með ráðningarmerkinguna 'Í starfi').

Ef að þátttakendur verða fleiri en hámarksfjöldi þátttakenda fara þeir á biðlista.

Ef að þátttakandi afskráir sig af námskeiði þar sem er biðlisti breytist þátttakandinn sem er efstur á biðlista sjálfkrafa í skráðan þátttakanda.

Þeir þátttakendur sem eru með þátttökustöðuna Skráður fá fundarboð þegar námskeiðið er vistað eða þegar starfsmaður skráir sig á námskeið í gegnum starfsmannavefinn. Ef þátttakandi afskráir sig fær hann afbókun á fundarboðið og sá þátttakandi sem er efstur á biðlista fær þátttökustöðuna Skráður og fær fundarboð sent.

Ef í einhverjum tilfellum sendist ekki fundarboð á þátttakendur er hægt að triggera sendingu fundarboða með því að keyra skipun CourseMeetingRequest.Send.[CourseID] þar sem CourseID er númer þess námskeiðs sem senda á fundarboðið fyrir.

...