Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Ráðningar: Notandi með hlutverkið Ráðningar hefur aðgang að kerfishlutanum Ráðningar. Notandinn hefur aðgang að öllum auglýsingum í kerfinu, umsækjendum og öllum þeirra gögnum. Hann hefur aðgang að öllum skýrslum og aðgerðum sem tilheyra viðkomandi kerfishluta. Notandinn hefur ekki aðgang að neinum gögnum um starfsmenn. Hlutverkið er ætlað ráðningarfulltrúum eða þeim sem vinna eingöngu við ráðningar í fyrirtækjum. 

Ráðningar (valdar auglýsingar): Notandi með hlutverkið Ráðningar - valdar auglýsingar hefur aðgang að kerfishlutanum Ráðningar. Notandinn hefur aðgang að þeim auglýsingum sem honum er veittur aðgangur að í kerfinu, umsækjendum og öllum þeirra gögnum. Hann hefur aðgang að skýrslum og aðgerðum sem tilheyra viðkomandi kerfishluta. Notandinn hefur ekki aðgang að neinum gögnum um starfsmenn. Hlutverkið er ætlað yfirmönnum eða öðrum sem koma að yfirferð umsókna. Hlutverkið veitir ekki aðgang að ráðningu né höfnun umsækjenda.

Yfirmaður með laun: Notandi með hlutverkið Yfirmaður með laun hefur aðgang að sínum undirmönnum í kerfinu og hefur heimild til að stofna, eyða, afrita og breyta færslum hjá þeim. Hann sér engar launaupplýsingar hjá öðrum en undirmönnum sínum. Notandi hefur aðgang að spjöldum og skýrslum sem tilheyra kerfishlutunum mannauður og laun. Þetta hlutverk veitir ekki aðgang að launaseðlum, gefa þarf aðgang að því sérstaklega. Hlutverkið er ætlað yfirmönnum sem hafa heimild til að sjá launaupplýsingar um sína undirmenn og þeim sem annast samþykkt launa. Ráðningar (valdar auglýsingar): Notandi með hlutverkið Ráðningar - valdar auglýsingar hefur aðgang að kerfishlutanum Ráðningar. Notandinn hefur aðgang að þeim auglýsingum sem honum er veittur aðgangur að í kerfinu, umsækjendum og öllum þeirra gögnum. Hann hefur aðgang að skýrslum og aðgerðum sem tilheyra viðkomandi kerfishluta. Notandinn hefur ekki aðgang að neinum gögnum um starfsmenn. Hlutverkið er ætlað yfirmönnum eða öðrum sem koma að yfirferð umsókna. Hlutverkið veitir ekki aðgang að ráðningu né höfnun umsækjendaEins getur þetta hlutverk gefið aðgang að vinnslu fyrir launabreytingar sinna starfsmanna, beiðnaferli, frammistöðumat og gátlista.

Yfirmaður án launa: Notandi með hlutverkið Yfirmaður án launa er sambærilegt og hlutverkið Yfirmaður með laun nema í þessu hlutverki er enginn aðganagur að launaupplýsingum. Hlutverkið getur líkt og hlutverkið Yfirmaður með laun gefið aðgang að beiðnaferli, frammistöðumati og gátlistum.

Starfsmannavefur: Starfsmenn þurfa að hafa hlutverkið Starfsmannavefur til að komast inn á starfsmannavefinn. Þar fá þeir aðgang að sínum gögnum, geta skráð sig á námskeið, séð sín skjöl, sent inn beiðni, svarað frammistöðumati og fleira.