Senda skjal
Velja starfsmann: Byrja þarf á að velja þann starfsmann sem á að skrifa undir skjal með því að smella á örina í glugganum Leita að starfsmanni ogþá opnast listi með öllum starfsmönnum. Einnig er hægt að slá inn nafn viðkomandi í gluggann.
Dagsetning: Hér kemur sjálfkrafa dagurinn í dag en ef gera á samning fram í tímann þarf að velja þá dagsetningu sem við á svo rétt gögn séu sótt m.v. spjaldið Tenging innan fyrirtækis.
Netfang starfsmanns: Hægt er að velja á milli vinnunetfangs og persónulegs netfangs. Hér kemur sjálfkrafa það netfang sem skráð er í netfang vinna.
Staða: Ef starfmaður er í fleiri en einu starfi er hægt að velja úr þeim stöðum sem starfsmaðurinn tilheyrir. Sjálfkrafa kemur sú staða sem skráð er sem aðalstsarf.
Undirritendur: Þegar starfsmaður hefur verið valinn þá kemur nafn starfsmannsins í reitinn Undirritendur ásamt þeim yfirmanni sem skráður er á starfsmanninn. Hægt er að fjarlægja yfirmanninn með því að velja X við nafnið hans ef yfirmaður á ekki að fá skjalið til undirritunar. Einnig er hægt að bæta við undirritendum með því að slá inn nafn viðkomandi í reitinn.
Hægt er að setja inn stillingu í kerfið til að skilgreina undirritendur sem koma alltaf sjálfkrafa í stað næsta yfirmanns, t.d. starfsmenn mannauðsdeildar ef þeir sjá alfarið um undirritun á skjölum á móti starfsmönnum.
Sniðmát: Hér er hægt að velja það sniðmát sem á að senda. Hægt er að breyta sniðmátinu áður en það er sent út með því að velja hnappinn Breyta. Athugið að ef sniðmáti er breytt áður en það er sent út til undirritunar þá hefur það ekki áhrif á sniðmátið sjálft.
Skjal: Það er líka hægt að hlaða niður skjali til að senda til undirritunar. Er þá skjalið valið inn hér.
Heiti skjals: Hér kemur heitið á sniðmátinu sem var valið en því er hægt að breyta áður en skjalið er sent út. Líkt og með breytinguna á sniðmátinu þá hefur þessi breyting ekki áhrif á sniðmátið sjálft.
Tegund skjals: Hér kemur sú tegund skjals sem er valin í stillingu sem sjálfvalin tegund skjals fyrir rafrænar undirritanir. Hér er hægt að velja aðra tegund skjals í listanum. Í listanum birtast þær tegundir skjala sem eru með eiganda skjals Starfsmaður og Launamaður.
Þegar sniðmát eða skjali hefur verið hlaðið niður birtist forskoðun á skjali hægra megin.
Senda skjal: Þegar skjalið er tilbúið er valið Senda skjal og er þá skjalið sent til undirritunar til þeirra starfsmanna sem skráðir voru í reitnum Undirritendur.