Stofnun á frammistöðumati er í client. Útbúa þarf spurningar og frammistöðumatseyðublöð og stofna frammistöðumat á starfsmenn í client.
Eins og í ráðningalausn og gátlistum þá eru spurningar og spurningasniðmát grunnurinn að frammistöðumatinu. Frammistöðumatseyðublað er hægt að stofna frá grunni með því að stofna spurningahópa og velja inn í það spurningar eða byggja það á fyrirfram skilgreindum spurningasniðmátum, sjá nánar Spurningar og spurningasniðmát í frammistöðumati.
Í Frammistöðumati í hliðarvalmynd er hægt að tengja frammistöðumatseyðublað á starfsmann. Það er gert með þvi að stofna nýja færslu og velja þar inn frammistöðumatseyðublað og starfsmann. Það fyllist sjálfkrafa út í svæðið Framkvæmdaraðili frammistöðumats með upplýsingum um þann aðila sem er skráður sem framkvæmdaraðili frammistöðumats á skipulagseiningu starfsmannsins. Ef annar aðili á að meta þennan tiltekna starfsmann en almennt á við um starfsmenn þessarar skipulagseiningar þá er hægt að yfirskrifa framkvæmdaraðilann á þessari skjámynd. Hægt er að skrá inn þær dagsetningar sem aðilar þurfa að vera búnir að fylla út frammistöðumatið fyrir. "Dagsetning frammistöðumats" er lokaskilafresturinn á matinu í heild, sú dagsetning má ekki vera á undan svarfrestum starfsmanns og yfirmanns en má vera sama dagsetning eða lengra fram í tímann. Hægt er að tengja áminningar við þessar dagsetningar.
ATH. Allar dagsetningar verða að vera fram í tímann. Líka Dagsetning frammistöðumats. Ekki er hægt að svara matinu ef Dagsetning frammistöðumats er liðin.
Ef yfirmaður á ekki að svara matinu fyrir samtalið sjálft er hægt að merkja Svör framkvæmdaraðila sem Skilað.
Ef starfsmaður á ekki að svara matinu (heldur engöngu yfirmaður) er hægt að merkja Svör starfsmanns sem Skilað.
Hægt er að stofna frammistöðumat á marga og þar er hægt að velja m.a. út frá skipuriti, starfsmanni eða kennitölum fyrir þá sem á að stofna frammistöðumat fyrir. Smellt er á Frammistöðumat á marga í hliðarvalmyndinni. Þegar valmyndin opnast þarf að byrja á því að smella á flipann Frammistöðumat og setja þar inn frammistöðumatseyðublaðið og dagsetningar. Svo er smellt á flipann Skipurit (ef á að senda frammistöðumat á ákveðnar skipulagseiningar t.d.) og þar er valin inn viðeigandi skipulagseining. Þegar smellt er á Sækja þá sendist frammistöðumatið á viðkomandi starfsmenn, þ.e. matið verður aðgengilegt á starfsmannavefnum fyrir starfsmenn og Kjarna vefnum fyrir yfirmenn.
Þegar trammistöðumats frammistöðumats ferlinu er lokið þá birtist Skilað undir Svör frammistöðumats í Kjarna client.
Skýrsla með niðurstöðum frammistöðumats, Svör frammistöðumats, er aðgengileg í hliðarvalmynd undir Kjarni > Frammistöðumat. Upp kemur valskjár þar sem nauðsynlegt er að velja frammistöðumatseyðublað. Einnig er hægt að takmarka niðurstöðuna við ákveðið tímabil, ef við á.
Skýrslan keyrist upp með nafni starfsmanns og svörum við endanlegu frammistöðumati. Hægt er að velja inn í skýrsluna helstu grunnupplýsingar starfsmanns, s.s. stöðu, skipulagseiningu og kennitölu. Í aftasta dálki skýrslunnar er svo útreiknuð niðurstaða m.v. þær skalaspurningar sem frammistöðumatið inniheldur.
Yfirmenn og starfsmenn geta einnig séð svörin á starfsmannavef og Kjarna vef.
Page Tree | ||
---|---|---|
|
Á starfsmannavef og Kjarnavef getur heitið verið annað en Frammistöðumat. Í boði er Samtal, Starfsþróunarsamtal og Starfsmannasamtal. Ef óskað er eftir að heitið sé annað skal senda beiðni á service@origo.is og taka fram hvaða heiti á að vera.