Hægt er að komast í skilagreinar í gegnum launahringinn með því að smella á Skila. | |
Skilagreinum er hægt að skila fyrir einstaka útborgun eða fyrir skilagreinamánuð. Skilagreinamánuður getur innihaldið fleiri en eina útborgun. | |
Hakað er í þá reiti sem skilgreindir voru við uppsetningu kerfisins, þ.e.a.s. hvernig gögnum skuli skilað. Í stofngögnum launa er hægt að breyta þessu forvali, annars vegar í stofngögnum lífeyrissjóða og hins vegar í stofngögnum stéttarfélaga.
Lífeyrissjóðir og stéttarfélög raðast í möppu samkvæmt stofngögnum lífeyrissjóða og stéttarfélaga. Lífeyrissjóður sem er með Vefskil innheimtuaðila og er skilað fyrir hverja útborgun kemur í möppuna "Senda sjóði með vefskilum" undir möppunni Útborgun. Lífeyrissjóður sem er með Vefskil innheimtuaðila og er skilað samkvæmt skilagreinamánuði kemur í möppuna "Senda sjóði með vefskilum" undir möppunni Skilagreinamánuður. Staðgreiðsla Staðgreiðsluskilagrein er alltaf send m.v. skilagreinamánuð. Athugið að ef valið er að prenta staðgreiðsluskilagrein á skjá, þá þarf að opna flipann Aðgerð í Valskjánum og eyða þar út svæðinu Staða vefskila. Þar kemur sjálfvalið 2 sem merkir að ekki eigi að birta þegar send vefskil til innheimtuaðila. Ef 2 er ekki fjarlægt þá koma greidd iðgjöd starfsmanna í lífeyrissjóð ekki fram á staðgreiðsluskilagrein á skjá. Þetta val hefur engin áhrif þegar valið er að senda staðgreiðslu með vefskilum. | |
Tegund skila: Val er um að skila iðgjöldum á eftirfarandi hátt :
Úr möppunni "Senda sjóði með tölvupósti" er hægt að hægri smella á möppu eða einstaka sjóði og velja annað hvort Senda lífeyrissjóði með tölvupósti eða Sena stéttarfélög með tölvupósti. | |
Úr möppunni "Senda sjóði með vefskilum" er hægt að hægri smella á möppu eða einstaka sjóði og velja Senda með vefskilum. | |
Senda með vefskilum birta líka allar eða valdar skilagreinar í trégerð. Möppurnar koma lokaðar, þannig að auðvelt er að lesa úr samtölum. Athugið að starfsendurhæfingarsjóður kemur sem hluti af mótframlögum í lífeyrissjóð. Til að ljúka ferlinu er smellt á hnappinn Senda í hægra neðra horni. | |
Skoða á skjá framkvæmir aðgerð án frekara millistigs, en hver skilagreinategund er birt í sér flipa. | |
Ef engin skráarslóð er valin í viðkomandi lífeyrissjóði eða stéttarfélagi er skráin vistuð undir „My Documents" hjá viðkomandi notanda og þar undir möppunni „skilagreinar". | |
Þegar valið er að skrifa út textaskrár fyrir alla lífeyrissjóði/stéttarfélög, þá kemur upp spurning um hvort það eigi að vista allar skrár án staðfestingar með því að nota þau skráarnöfn sem kerfið velur.
Þegar svarað er Já : þá vistast skrárnar sjálfkrafa á þegar skráða slóðir, eða í My Documents ef skráningu vantar – athugið að meldingin birtist í neðra hægra horninu og þar sést hvaða slóð var valin. Þegar svarað er Nei : þá þarf að samþykkja vistun fyrir hvern sjóð / félag fyrir sig. Þá er hægt að breyta staðsetningu vistunar ef þörf er á. Þegar allt er í lagi, er smellt á Skrifa og síðan á Loka. Ef fleiri sjóðir / félög fylgja á eftir, þá er leikurinn endurtekinn, smellt á Skrifa og síðan á Loka þar til allir sjóðir/félög hafa fengið sína skrá. | |
Staðfesting á aðgerð birtist neðst í hægra horni. | |
Uppsetning Lífeyrissjóðs, er í Hliðarvali > Kjarni > Laun > Lífeyrissjóðir. Tvísmellt á heiti sjóðs. | https://kjarni.atlassian.net/wiki/spaces/KJAR/pages/17400147/St+ttarf+l+g/ lífeyrissjóðir - stofngögn Það er hægt að stilla viðkomandi sjóð/félag hvort það eigi alltaf að prenta skilagreinar, senda vefskil, skrifa í skrá eða senda í pósti. Þetta val kemur sjálfkrafa hakað við þau í skilagreinamyndinni. Það er svo hægt að haka við fleiri, eftir þörfum í hvert sinn.
|
Uppsetning Stéttarfélags, er í Hliðarvali > Kjarni > Laun > Stéttarfélög. Tvísmellt á heiti félags. |
General
Content
Integrations