2. Skilagreinar

 



 

Hægt er að komast í skilagreinar í gegnum launahringinn með því að smella á Skila.



 

Tvær yfirmöppur eru í Skilagreinum í Skila, en mismunandi er eftir viðskiptavinum hversu margar möppur eru þar undir. Skilagreinum er hægt að skila fyrir einstaka útborgun eða fyrir skilagreinamánuð og getur skilagreinamánuður innihaldið fleiri en eina útborgun.

Fyrsta mappan,  Útborgun sem hér er merkt: = 177 kemur hjá öllum. Undir þessari möppu eru skilagreinar til þeirra innheimtuaðila sem fá skil fyrir alla útborgunina í einu:

  • Banki, skilagrein vegna launa og orlofsgreiðslna, bankaskrá innheimtuaðila.

  • Gjaldheimtur, eins og Innheimtustofnun Sveitarfélaga og Ríkisskattstjóra.

  • Senda sjóði með tölvupósti - stéttarfélög og lífeyrissjóðir sem fá skilagreinar sendar fyrir alla útborgunina, óháð skilagreinamánuði.

  • Senda sjóði með vefskilum - stéttarfélög og lífeyrissjóðir sem fá skilagreinar sendar fyrir alla útborgunina, óháð skilagreinamánuði.

  • Gjaldkeralisti fyrir valda útborgun.

Seinni mappan, Skilagreinamánuður, hér merkt : Júní 2022 kemur líka hjá öllum, þar sem staðgreiðslu er ávallt skilað skv. skilagreinamánuði.

  • Staðgreiðsla

  • Senda sjóði með tölvupósti

  • Senda sjóði með vefskilum

  • Banki, bankaskrá innheimtuaðila

  • Gjaldkeralisti fyrir skilagreinamánuðinn

Ef enginn sjóður er skilgreindur þannig að senda eigi með tölvupósti þá myndast sú mappa ekki.  Mappa myndast ekki nema eitthvað sé í henni.



 

 



Hakað er í þá reiti sem skilgreindir voru við uppsetningu kerfisins, þ.e.a.s. hvernig gögnum skuli skilað.

Í stofngögnum launa er hægt að breyta þessu forvali, annars vegar í stofngögnum lífeyrissjóða og hins vegar í stofngögnum stéttarfélaga.


Ef breyta skal vali tímabundið, er hakað í viðeigandi reit eða hægrismellt á valda skilagrein.

Lífeyrissjóðir og stéttarfélög raðast í möppu samkvæmt stofngögnum lífeyrissjóða og stéttarfélaga.

Lífeyrissjóður sem er með Vefskil innheimtuaðila og er skilað fyrir hverja útborgun kemur í möppuna "Senda sjóði með vefskilum" undir möppunni Útborgun.



Lífeyrissjóður sem er með Vefskil innheimtuaðila og er skilað samkvæmt skilagreinamánuði kemur í möppuna "Senda sjóði með vefskilum" undir möppunni Skilagreinamánuður.

Staðgreiðsla

Staðgreiðsluskilagrein er alltaf send m.v. skilagreinamánuð.

Athugið að ef valið er að prenta staðgreiðsluskilagrein á skjá, þá þarf að opna flipann Aðgerð í Valskjánum og eyða þar út svæðinu Staða vefskila. Þar kemur sjálfvalið 2 sem merkir að ekki eigi að birta þegar send vefskil til innheimtuaðila. Ef 2 er ekki fjarlægt þá koma greidd iðgjöd starfsmanna í lífeyrissjóð ekki fram á staðgreiðsluskilagrein á skjá.

Þetta val hefur engin áhrif þegar valið er að senda staðgreiðslu með vefskilum.

Tegund skila: Val er um að skila iðgjöldum á eftirfarandi hátt :

  • Senda sjóði með tölvupósti.

  • Senda sjóði með vefskilum.

Úr möppunni "Senda sjóði með tölvupósti" er hægt að hægri smella á möppu eða einstaka sjóði og velja annað hvort Senda lífeyrissjóði með tölvupósti eða Sena stéttarfélög með tölvupósti.

 

Úr möppunni "Senda sjóði með vefskilum" er hægt að hægri smella á möppu eða einstaka sjóði og velja Senda með vefskilum.

 

Senda með vefskilum birta líka allar eða valdar skilagreinar í trégerð. Möppurnar koma lokaðar, þannig að auðvelt er að lesa úr samtölum. Athugið að starfsendurhæfingarsjóður kemur sem hluti af mótframlögum í lífeyrissjóð. Til að ljúka ferlinu er smellt á hnappinn Senda í hægra neðra horni.

 

Skoða á skjá framkvæmir aðgerð án frekara millistigs, en hver skilagreinategund er birt í sér flipa.

Skrifa í skrá opnar fyrst spjallglugga;

Uppsetning Lífeyrissjóðs, er í Hliðarvali > Kjarni > Laun > Lífeyrissjóðir. Tvísmellt á heiti sjóðs.

 

Stéttarfélög / lífeyrissjóðir - stofngögn

Það er hægt að stilla viðkomandi sjóð/félag hvort það eigi alltaf að prenta skilagreinar, senda vefskil, skrifa í skrá eða senda í pósti. Þetta val kemur sjálfkrafa hakað við þau í skilagreinamyndinni. Það er svo hægt að haka við fleiri, eftir þörfum í hvert sinn. 


Það er hægt að skilgreina slóð og skráarnafn í lífeyrissjóðum og stéttarfélögum, sem er þá notað þegar skráin er vistuð. Það er gert í þessum skjámyndum (Skráarnafn ef skrifa í skrá).

Uppsetning Stéttarfélags, er í Hliðarvali > Kjarni > Laun > Stéttarfélög. Tvísmellt á heiti félags.