Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 10 Next »

Undir Laun á Kjarna vef er aðgerðin Launabreytingar aðgengileg.

Virknin er þannig að launafjárhæðir eru stóttar fyrir skilgreinda launaliði í spjaldið Fastir launaliðir hjá starfsmönnum.

Til þess að virkja aðgerðina þarf að setja inn skipun í vefgildi. Ráðgjafar Origo aðstoða við það og hægt er að senda beiðni á service@origo.is til að virkja hana.

Þegar smellt er á launabreytingar opnast listi yfir starfsmenn sem viðkomandi notandi hefur aðgang að.

Efst má sjá fjölda starfsmanna ásamt meðallaunum og miðgildi starfsmannahópsins.

Starfafjölskyldan er starfið sem tengt er á stöðu starfsmanns og launarammin er sóttur á starfið ef hann er skráður þar. Ef viðskiptavinir eru að nota Jafnlaunavottun - Starfafjölskyldur sem settar eru inn á grunnlaunaspjöld starfsmanna þá birtast þær starfafjölskyldur í listanum en ekki þær sem tengdar eru á stöðuna, sjá nánar hér.

Laun starfsmanns sýna mánaðarlaun og þá launaliði sem tilgreindir eru í stillingum sem ráðgjafar Origo aðstoða við að setja inn.

Undir stöðu launa má sjá hvort starfsmaður er yfir, undir eða innan launaramma.

Til þess að stofna launabreytingu er smellt á örina fyrir framan nafn þess starfsmanns sem breyta á launum fyrir:

Launafjárhæðir sem þarna birtast eru miðað við 100% laun.

Miðgildi og meðallaun m.v. alla á þessari sömu starfafjölskyldu, ekki bara þá sem notandinn hefur aðgang að. Þetta gefur notandanum meiri upplýsingar en bara takmarkað við þann hóp sem hann hefur aðgang að. 

Myndin til hægri sýnir launaþróun starfsmanns sl. ára miðað við þá launaliði sem eru í stillingu.

Smellt er á að breyta launum og á kemur þessi mynd upp:

  • Skráð er krónutala hækkunar og þá reiknast út hver hækkunin er í prósentum og hver mánaðarlaunin verða eftir breytingu

  • Skráð er prósentutala hækkunar og þá reikanst út hver hækkunin er í krónum og hver mánaðarlaunin verða eftir breytingu

  • Þar fyrir neðan koma áætluð heildarlaun eftir breytingu útfrá stillingum og staða starfsmanns innan launaramma

  • Rökstuðingur er valinn úr fellivali, hægt er að velja fleirra en eitt atriði (Listinn stofnaður undir Stofngögn launa)

  • Mat á frammistöðu valið úr fellivali (Listinn stofnaður undir Stofngögn launa)

  • Uppafsdagur launabreytinga skráður

  • Svæði fyrir athugasemdir

  • Smellt á Áfram og færsla stofnast undir flipanum launabreytingar

Ef viðskiptavinir vilja að það sendist tölvupóstur á einhverja aðila þegar launabreytingafærslur eru stofnaðar er hægt að setja þau netföng inn í stillingar. Senda þarf beiðni á service@origo.is þess efnis.

Þarna birtast allar launabreytingar sem stofnaðar hafa verið á völdu tímabili.

Ef stjórnandi má Samþykkja eða hafna launabreytingu þarf að bæta þeim möguleika inn í hlutverk viðkomandi. Ráðgjafar Origo aðstoða við það.

Launa- og mannauðsdeildir þurfa að fylgjast með breytingum þarna og handgera breytingar á grunnlaunasjöldum þeirra starfsmanna sem fá breytingu á launum.

  • No labels