Í flestum listum og skýrslum sem innihalda raungögn er að finna þennan hnapp (Greining) hægra megin í tækjaslánni. Þegar ýtt er á hnappinn opnast greiningar listi. Þar er hægt að vinna með listann eins og í Pivot töflu í Excel.
Á þessari mynd má sjá greiningar útlit á listanum Tenging innan fyrirtækis þar sem búið er að setja inn gildi sem sýna kynjahlutföll í fyrirtækinu eftir skipulagseiningum.
| |
Ef smellt er á myndritshnappinn í tækjastikunni opnar kerfið myndrit út frá tölfræði þeirra gagna sem verið er að vinna með | |
Hægt er að setja inn formúlur í greiningar listann með því að smella á PivotExpression hnappinn í tækjaslánni. Þá opnast formúlugluggi. Í dæminu hér til hliðar má sjá hvernig kerfið er látið reikna hlutfall kvenna í skipulagseiningum og það sett inn í greiningarlistann. Fyrst er búinn til dálkur þar sem kerfið er látið reikna heildar fjölda starfsmanna í skipulagseiningu og þar við hliðin á er gerður dálkur þar sem fjölda kvenna er deilt upp í heildarfjöldan. |