Greiningarlistar

Í flestum listum og skýrslum sem innihalda raungögn er að finna þennan hnapp (Greining) hægra megin í tækjaslánni. Þegar ýtt er á hnappinn opnast greiningarlisti. Þar er hægt að vinna með listann eins og í Pivot töflu í Excel.


Á þessari mynd má sjá greiningarútlit á listanum Tenging innan fyrirtækis þar sem búið er að setja inn gildi sem sýna kynjahlutföll í fyrirtækinu eftir skipulagseiningum. 
Efri listinn sýnir aðeins nafn skipulagseiningar og fjöldi kvenna og karla í hverri skipulagseiningu. Ef að nafnið er dregið niður við hlið Skipulagseiningar breytist listinn og nöfn starfsmanna birtast fyrir aftan nafn skipulagseiningar. 


Hægt er að velja fleiri dálka inn með því að smella á hnappinn Velja dálka í tækjastikunni. 

Ef smellt er á myndritshnappinn  í tækjastikunni opnar kerfið myndrit út frá tölfræði þeirra gagna sem verið er að vinna með.

Hægt er að setja inn formúlur í greiningarlistann með því að smella á PivotExpression hnappinn  í tækjaslánni. Þá opnast formúlugluggi. 


Í dæminu hér til hliðar má sjá hvernig kerfið er látið reikna hlutfall kvenna í skipulagseiningum og það sett inn í greiningarlistann. Fyrst er búinn til dálkur þar sem kerfið er látið reikna heildar fjölda starfsmanna í skipulagseiningu og þar við hliðina á er gerður dálkur þar sem fjölda kvenna er deilt upp í heildarfjöldann. 

Til þess að framkalla dæmið hér að ofan er byrjað á því að útbúa dálkana tvo með því að smella á plúsinn neðst fyrir hverja nýja línu/dálk og nafn dálkanna skrifað inn þar sem stendur Veldu texta.

Því næst er varlið Numeric undir Cell Format Type og í glugganum til hægri er valið Fields.


Síðan er efri línan valin og tvísmellt á Kona, plúsinn svo valinn og svo tvísmellt á Karl og smellt á Virkja.

Því næst er neðri línan valin og tvísmellt á Kona deiling valin og svo tvísmellt á Fjöldi starfsmanna og smellt á Virkja.