Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 14 Next »

Næsti yfirmaður í starfsmannaleit

APPAIL-5079

Í útgáfu 18.5.1 kom inn nýjung þar sem hægt var að leita eftir næsta yfirmanni í starfsmannaleit með því að setja inn 'manager: (nafn yfirmanns)'. Þessi leit virtist ekki vera að virka nema kveikt væri á vefgildi fyrir Employee.Api.Show.EmployeesSearch.Qualifications en það hefur verið lagað.

Viðhald heimasíma á starfsmannavef

APPAIL-5095

Bætt hefur verið við virkni þar sem starfsmaður getur núna breytt heimasíma á starfsmannavefnum. Kveikt þarf að vera á stillingu Employee.Web.Edit.EmployeeMaster.PhoneNumberHome í vefgildi.

Skráning á skattkorti í Internet Explorer og Edge

APPAIL-5129

Þegar skattkort eða skattkort maka var skráð í Internet Explorer eða Edge hékk vinnsluhjól endalaust. Þetta hefur verið lagað.

Starfsaldur til viðurkenninga er núna Starfsaldur í fyrirtæki

APPAIL-5148

Búið er að breyta heitinu Starfsaldur til viðurkenninga í Starfsaldur í fyrirtæki.

Skráning á námskeið ef námskeiðið fullt

APPAIL-5146

Starfsmaður gat í einhverjum tilvikum skráð sig á námskeið þótt það væri fullt á námskeiðið. Þetta hefur verið lagað.

Breytt upphafssíða fyrir starfsmannavef

APPAIL-5101APPAIL-5102

Umfangsmiklar breytingar hafa verið gerðar á upphafssíðu starfsmannavefsins. Nú er hægt að birta þar grunnupplýsingar starfsmanns auk upplýsinga sem eiga við á þeim tímapunkti sem starfsmaður skráir sig inn á vefinn, t.d. orlofsstöðu, námskeið og frammistöðumat framundan, námskeiðsmat sem eftir á að svara og afmælisbörn dagsins. Það er stillingaratriði hvaða flísar birtast á upphafssíðunni, sjá nánar hér

Athugið að ef engin stilling er sett inn fyrir upphafssíðu í vefgildi þá birtast allar flísar sem í boði eru þ.e. Mínar upplýsingar, Námskeið, Orlof, Námskeiðsmat, Frammistöðumat og Afmælisbörn. Ef óskað er eftir aðstoð við að setja inn viðeigandi stillingar skal senda póst á service@origo.is. 

Afmælisbörn á upphafssíðu starfsmannavefs

APPAIL-5101APPAIL-5102

Nú er hægt að birta afmælisbörn dagsins á upphafssíðu starfsmannavefs. Mynd af starfsmanni, nafn og aldur birtist á upphafssíðunni. Hægt er að setja inn stillingu í vefgildi til þess að fela aldur afmælisbarna á upphafssíðu. Stillingin er Employee.Web.Hide.Birthdays.Age = False

Mínar upplýsingar 

APPAIL-5206

Eftir að ofangreindar breytingar voru gerðar á upphafssíðunni var útbúin sér síða fyrir Mínar upplýsingar. Á upphafssíðunni birtast nú bara lágmarks upplýsingar um starfsmann en ítarlegri upplýsingar, sem áður voru aðgengilegar á upphafssíðu, eru aðgengilegar á síðunni Mínar upplýsingar. Hægt er að komast í Mínar upplýsingar með því að smella á hlekk á upphafssiðu eða með því að fara í Valmynd > Mínar upplýsingar

Punktafjöldi á námskeið

APPAIL-5021APPAIL-5025

Bætt hefur verið við svæði sem sýnir punktafjölda sem námskeið gefur ef upplýsingar eru skráðar í það svæði í Kjarna.  

Skráningar- og afskráningarfrestur á námskeið

APPAIL-5245

Nú er hægt að hafa mismunandi skráningar- og afskráningarfrest fyrir námskeið á starfsmannavef. Grunnstillingarnar í vefnum eru þannig að skráning og afskráning er leyfð þar til námskeið hefst. Nú hefur því verið bætt við stillingarmöguleika þar sem viðskiptavinir geta breytt þessum staðlaða skráningar-/afskráningarfresti. Stillingarnar eru settar inn í XAP > Gildi í kerfisvalmynd Kjarna. Stillingin Employee.Api.Value.CourseDeadlineRegister er fyrir skráningu og stillingin Employee.Api.Value.CourseDeadlineCancel fyrir afskráningu. Í svæðið Gildi fyrir hvora stillingu er skráður skráningar-/afskráningarfresturinn í klukkustundum. Ef einstaka námskeið eiga að hafa annan skráningar-/afskráningarfrest en almennt þá er nú einnig hægt að viðhalda skráningar-/afskráningarfresti á námskeiðunum sjálfum með því að yfirskrifa þann klukkustundafjölda sem birtist út frá almennu stillingunum. 



  • No labels