Notandanafn skráð í starfsmannaspjald myndar tengingu við notanda
Í útgáfu 18.9.1 var bætt við að ef notandanafn var skráð í starfsmannaspjald eftir að notandi hafði verið stofnaður myndaðist tenging á milli starfsmanns og notanda (EmployeeXapUser) líkt og gerðist þegar notandanafn var fyrst skráð í starfsmannaspjaldið og svo stofnaður notandi. Aftur á móti var þetta bara að virka ef kveikt var á sjálfvirkri stofnun notanda (User.AutomaticCreate) í Xap > Gildi. Þetta hefur verið lagað og virkar þetta núna hvort sem kveikt er á sjálfvirkri stofnun notanda eða ekki.