Þessi síða er í vinnslu.
Á starfsmannavefnum er hægt að birta upplýsingar um þá styrki sem starfsfólki stendur til boða. Hægt er að sýna upplýsingar/leiðbeiningar um viðkomandi styrk, hafa möguleika á að vista viðhengi með og/eða hafa hlekk á aðra síðu, ef við á. Ef viðhengi er vistað með þá verður aðgengilegt mannauðsdeild í spjaldinu Viðhengi í Kjarna og aðgengilegt starfsmanninum sjálfum í Skjalaskáp á starfsmannavef. Einnig er hægt að láta viðhengið sendast í tölvupósti á tiltekið netfang um leið og það er vistað.
Það eru síðan tveir mismunandi möguleikar í boði eftir því hvernig styrk er verið að birta:
- Ef um er að ræða t.d. líkamsræktarstyrk að ákveðinni upphæð þá er hægt að birta upphæðina sem starfsmönnum stendur til boða auk upplýsinga um þá upphæð sem starfsmaður hefur þegar nýtt. Upphæðin sem þegar hefur verið nýtt er sótt í tiltekinn launalið í launaskráningu.
- Ef aftur á móti um er að ræða t.d. samgöngustyrk þá er hægt að birta upplýsingar um hversu lengi styrkurinn gildir og er dagsetningin þá sótt í endadagsetningu tiltekins launaliðar í föstum launaliðum.
Á sama stað er einnig hægt að birta upplýsingar um aðra heilsueflingu sem gæti staðið til boða eins og samtal við trúnaðarlækni, augnskoðun eða annað sambærilegt.
Birting á vef
Á upphafssíðu starfsmannvefs er hægt að birta yfirlit yfir þá styrki og þá heilsueflingu sem stendur starfsfólki til boða. Það er stillingaratriði hvort þessar flísar birtist á upphafssíðu og er það
Á undirsíðunni Styrkir sem hægt er að birta í Valmynd og birtist einnig þegar smellt er á Skoða nánar birtast svo ítarlegri upplýsingar um þá styrki sem eru í boði.
Stillingar
Stillingar fyrir þessa virkni eru aðgengilegar í kerfisvalmynd undir Stillingar > Styrkir.
Hér að neðan sést dæmi um hvernig stillingarnar geta litið út og fyrir neðan skjámyndina er hver dálkur í stilltöflunni útskýrður nánar.
- Í Nafn er skráð sú fyrirsögn sem á að birtast á viðkomandi flís á starfsmannavefnum.
- Tegund styrks tilgreinir hvort um Styrk eða Heilsueflingu er að ræða upp á flokkunina og birtingu á flísum.
- Birta segir til um hvort sækja eigi upphæð í launaskráningu, Upphæð, dagsetningu í fasta launaliði, Dagsetning, eða hvorugt, Ekkert.
- Launaliður nr. segir til um hvaða launalið á að sækja upplýsingar fyrir í launaskráningu eða föstum launaliðum.
- Launaliður sýnir nafn þess launaliðs sem skráður var í Launaliður nr.
- Sniðmát vísir er númer þess sniðmáts sem að birta texta á vefnum úr. Sniðmát er aðgengilegt í Kjarni > Stofnskrár > Bréf.
- Sniðmát birtir nafn viðkomandi sniðmáts.
- Hlekkur er vefslóð á síðu sem hægt er að vísa á. Ef vefslóð er skilgreind þarna þá birtist hnappurinn Sækja um á viðkomandi flís á starfsmannavefnum.
- Tegund skjals vísir segir til um á hvaða skjalategund skjal á að vistast á ef starfsmaður á að geta hengt viðhengi við.
- Tegund skjals er nafn viðkomandi viðhengjategundar.
- Netföng segir til um á hvaða netfang/netföng viðhengið á að sendast á, ef við á.
- Ráðningamerking er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi ráðningarmerkingar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna.
- Tegund ráðningar er notuð ef viðkomandi flísar eiga eingöngu að birtast hjá ákveðnum hópi starfsmanna. Stofna þarf nokkrar sambærilegar línur fyrir mismunandi tegundir ráðningar ef upplýsingarnar eiga að birtast hjá nokkrum hópum starfsmanna.