Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 12 Next »

Aldurshækkanir stofna ný spjöld, laga virkni

APPAIL-3655

Það getur komið fyrir að búið sé að skrá nýtt grunnlaunaspjald fram í tímann hjá starfsmanni þegar viðkomandi kemur upp í aldurshækkanatillögu.

Í slíku tilfelli kemur nú rauðletruð athugasemd við nafn viðkomandi starfsmanns.

Ef þetta kemur fyrir, þá þarf að haka við að sleppa skuli viðkomandi starfsmanni í aldurshækkunum og handskrá breytinguna ef hún á í raun við.

Athugið að þegar hakað hefur verið við Selppa verður að Vista þá skráningu áður en aðgerðin er keyrð af stað.

Ef hækkunin er vistuð þrátt fyrir þessa viðvörun, þá verða til tvær færslur með gildistíma til 31.12.9999 og það er ekki leyfilegt í grunnlaunaspjaldi.

Endurbætt forritun við afleiðingar á yfirskrift á samningi-launaflokki-þrepi í föstum liðum.

APPAIL-4436

Hægt er að yfirskrifa SAM-LF-Þ á völdum færslum í spjaldinu fastir liðir. Þegar það er gert þá er grunnlaunaspjald starfsmanns ekki skoðað þegar þessir völdu launaliðir koma inn í launaskráningu eða í skuldbindingu viðkomandi starfsmanna.

Þessari virkni var breytt þar sem hún útilokaði handskráningu á þrepi númer 0. Kjarni leit á 0 sem tóman reit og fletti því ávallt upp í grunnlaunaspjaldi þegar núll var handslegið inn í reitinn þrep í launaskráningu.

Breytingin veldur því að ef yfirskrifa þarf launaflokk eða þrep í föstum liðum starfsmanns, þá verður jafnframt að yfirskrifa samninginn, þó svo að það sé mögulega sami samningur og skráður er í grunnlaunaspjaldið. Þetta þarf að gera til að innlestur og ávinnslur/skuldbindingar taki einni tillit til yfirskriftar á launaflokki eða þrepi.

ATH! þó svo að samningsnúmerið sjáist í föstum liðum, þá er það bara birting úr grunnlaunaspjaldi. Því verður að handskrifa númerið ofan í reitinn samningur til að virkja yfirskrift í öðrum forritum, eins og innlestri og sækja ávinnslur.

Bókhaldslykill skipulagseiningar inn í listum.

APPAIL-4289

Nú er hægt að draga svæðið Bókhaldslykill skipulagseiningar inn í launalista til afstemminga.

Logib flokkun fyrir jafnlaunavottun bætt á stöður

APPAIL-4497

Logib flokkun fyrir jafnlaunavottun hefur verið bætt á stöður í Kjarna. Sjá nánari upplýsingar hér.

Lokun útborgunar

APPAIL-4527

Nú er hraðvirkara að loka útborgun.  Neðst í aðgerðaglugga er sýnilegt í hvaða aðgerð Kjarni er kominn í ferlinu við að loka útborgun.  Frekar mikill tími fer í að vista launaseðla.

Bunkainnlestur - bætt villumeðhöndlun

APPAIL-4392 og APPAIL-4559

Ef reynt er að lesa inn færslur á óvirkan starfsmann, þá kemur villumelding á "Bunki í launaskráningu" og færslan er ekki lesin inn í útborgun.

Texta breytt, þannig að færslur sem lesast eðlilega inn í bunka, en lesast ekki alla leið inn í launaskráningu fá textann "Ekki flutt í skráningu"

Skrá laun - hægt að vista uppsetningu hjá hverjum notanda

APPAIL-4278

Hægt að draga inn dálka að vild í launaskráningu og vista sniðmátið með því að velja "Geyma útlit". Skjáútlit er geymt á hvern notanda fyrir sig.

Hálfsmánaðarútborgun

APPAIL-4535



  • No labels